![]() |
![]() iki-skvisurFriday, March 22, 2002 Komin heim til Montgomery Við Doddi komum heim frá Daytona í gær, púhú hér er kludakast, alveg hrikalegt þegar maður er núkomin úr hitanum hjá Jane. Já Jane ég trúi því mjög vel að þú saknir mín, saknir alls draslsins sem myndaðis af ferðatöskum og rúminu í miðri stofu. Þú verður fljót að jafna þig. Heldurðu að við höfum ekki bara tekið stuttbuxurnar hans Ella með okkur, og einn auka vatnsbrúsa. 'Eg sendi þetta bara við fyrsta tækifæri, sendu mér bara heimilisfangið ykkar. Mig langar í saumó Thursday, March 21, 2002 Hæ mikið vildi ég að ég væri í sólinni hja ykkur Jane og Vaka. Frábært Jónína að þú komist kannski. Hildur kemur líka og ég veit ekki enn hvort Beta komi en hún er að vinna í Vestmannaeyjum, er að þjálfa kvennaliðið í fótbolta þar og vinna eitthvað í skólanum með en er samt með annan fótin alveg hér í Reykjavík um helgar og svona. Er ekki leiðinlegt að John sé svona lengi í burtu eða venst það bara? Annars allt gott að frétta. Eg var að fá nýja frænku snemma í morgun en Jói bróðir minn og konan hans hans voru að eignast sitt annað barn og hún er ´víst alger dúlla. Mæting kl. 20:00 í saumóinn á mánudaginn, sjáumst þá.Fanney Wednesday, March 20, 2002 Hæ hæ alles Allt gott að frétta hér og allir hressir. Jónína það er frábært ef þú getur kíkt, það er svo láng síðan við höfum séð þig svona almennilega. Ég hitti þig nú aðeins í Kringlunni í sumar en það var svo stutt. Svo ætlar Katla að koma og Sigfríð kemur og Sonja, svo það verða fullt af sögum og kjaftasögum og ferðasögum. Það er svo langt síðan ég hef seð ykkur allar að þetta verður voða gaman. Endilega ef Helga verður á þessum slóðum líka þá væri æði að sjá hana líka. Þið sem eruð í útlöndunum, þið verðið bara að koma heim í nokkra daga hahahah:) Jónína er John mikið á sjónum og er hann ekki á skipi frá Ólafsfirði?? Jæja ætla að drífa mig að setja litlu róuna út að sofa hún er orðin svo lúin. Heyrumst seinna. bæjó Fanney Tuesday, March 19, 2002 Hæ hæ Gaman að heyra í ykkur. Jónína verður þú í bænum 25. mars. Ef svo verður þá er saumó hjá mer það kvöld . Tékkaðu á því. Annars frábært að ykkur tókst þetta. bæjó Fanney Monday, March 18, 2002 Hæ hæ, gaman að sjá að þetta er að ganga hjá ykkur stelpur. Fanney, ég kemst í saumaklúbbinn 25 nk. gaman að hitta sem flestar. Kveðja Helena :) |
![]() |