![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, March 30, 2002 Hæ þið skvísur sem eru á Akureyri um páskana, gangið nú hægt um gleðinnar dyr í kvöld :)) Segið okkur nú svo kjaftasögurnar frá kvöldinu. Góða skemmtun á skíðum :)) Sí ja Friday, March 29, 2002 hæhó Ég átti bara eftir að senda ykkur slóðina að heimasíðunni hennar Hildar. Kemur á hotmailinu ok.:) Verð að þjóta bæ. Wednesday, March 27, 2002 Hæ hó görlur, Þið sem voruð ekki í saumó, þá var Fanney alveg frábær gestgjafi, reytti fram góða og skrautlega rétti :) hehe ( Fanney, kakan var mjög góð hjá þér). Katla, Sonja, Hildur, Sigfríð, Jónína, Melkorka, ég og auddað Fanney voru þarna, langt síðan að svona margar mættu og ekkert smá gaman að hitta margar þeirra eftir langan tíma :)) Veðurfréttirna hérna á Íslandi eru þær að það snjóar og snjóar og snjóar næstu daga :)) Maður hélt að vorið væri komið en viti menn, það er allt komið í kaf aftur, páskahretið eins og þeir segja. Annars er fínt að frétta hjá mér, reyndar ákvað ég endanlega í dag að fara ekki til Akureyrar því ég lenti í því óláni að keyra útaf :(( Ég var að fara inn í Keflavík í Lífsstíl þegar ég lenti í hálku og krapi og lenti utan vegar. Til mikillar lukku var enginn bíll að koma á móti og ég meiddist ekki neitt. EN ég er ekki smá hneyksluð á þessu fólki hér því það keyrðu u.þ.b. 20 bílar framhjá án þess að stoppa. Loks stoppaði ein kona og svo jeppakarl sem gat togað mig upp. Allt er gott sem endar vel. Helena verður því bara heima um páskana. Hinar stelpurnar hljóta að fara að koma hérna inn, við dokum bara eftir þeim :)) Heyrumst síðar, bæjó Helena Sunday, March 24, 2002 Hæ hæ saumóskvísur Saumó hjá mer á morgun mánudaginn 25. mars kl. 20. Allir að mæta. |
![]() |