![]() |
![]() iki-skvisurFriday, April 19, 2002 Hæ Var að koma inn úr sólinni, ég er nefnilega með sundlaug alveg eins og J.P. en það tekur mig 3 tíma að keyra á ströndina svo ég hef ekki um margt að velja. Reyndar er hita bylgja eða eitthvað hér í USA, það munar bara einni gráðu að það sé met hiti (í apríl) það hefur ekki orðið svona heitt í apríl síðan 1955. Frábært hjá þér Erna að ætla út í eyjar í sumar, þetta verður svaðalegt sumar hjá ykkur B. Er allt að verða vitlaust þarna Keflavíkinni, hálsbólga og ættleiðingar. ´Jæja best að fara að læra, dösuð eftir sólina :) Erna Hlín, gott hjá þér að taka við þessari stöðu í Eyjum :)) líst frábærlega á þetta hjá þér. Hvernig er það stelpur, er þá ekki planið að fara á Þjóðhátíð í ár???? Jane ertu alltaf út á bakka eða á ströndinni, ég frétti að þú værir orðin vel brún :)) er það einhver vitleysa eða hvað? Já og ég er búin að sjá mynd af stelpunni hennar Kiddýar :)) algjör bolla og rosalega sæt. Erna, ég held að þú hafir smitað mig þegar ég hitti þig síðast :Þ er komin með hálsbólgu :( Sí ja leiter Wednesday, April 17, 2002 Hæ hó stelpur :)) Ótrúlegt alveg hvað þessi vetur er búinn að vera fljótur að líða, en hvað ætliði að gera í sumar??? Ég er að hugsa mér að taka langþráð sumarfrí, jibbííí. Er ekki búin að sækja um vinnu og ætla því að hafa það nice í sumar :)) arrhhhh (vonandi að það verði gott sumar). Ég var einmitt á Hólmavík um síðustu helgi og það var mjög fínt. Ég hugsa alltaf að ég sé komin heim þegar ég kem á Hólmavík (skrítið) og ætli ég verði ekki með annan fótinn þar næsta sumar. Fanney mér líst vel á að þú haldir upp á afmælið þitt :)) Er Pálmi ekki orðinn pabbi? Veit einhver hvað hann átti, því Erna vissi það ekki þegar ég hitti hana í gær :)) ????? Heyrumst Tuesday, April 16, 2002 Hæ stelpur Hafið þið séð myndina Beautiful Mind? ...Allavega var ég að læra um kenningar hans John Nash í skólanum í dag og mér fannst það ógeðslega merkilegt :) Annars er bara allt fínt að frétta af okkur Dodda, bara rútína viku eftir viku, jeij. Já Fanney prófið þitt var ekki mjög erfitt ég fékk hundrað stig (rosa monntin). Við Doddi ætlum að leggja flugvél undir fót í maí og skella okkur til New York og skoða merka staði, vonandi sjáið þið mig á förnum vegi í Sex and the City!!! Erna ég samhryggist en láttu endilega leyndóið flakka! |
![]() |