left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Thursday, May 02, 2002
 
Til hamingju Erna Þrekmeistari

Jane ertu farin til Islands, skilurðu mig bara eftir. Annars sit ég heima og streða við próflestur er búin með 2 lokapróf og á 3 próf eftir í næstu viku og svo er ég komin í smá sumarfrí. Helena ég veit að Pálmi er búinn að eiga, mann ekki hvað hann átti.





Wednesday, May 01, 2002
 
Hey hó,
Er alveg sammála ykkur með þetta veður, ég hélt að það væri komið sumar. Jane, velkomin heim í kuldann :)) en við hér fyrir sunnan erum nú aðeins heppnari en þið fyrir norðan, engin snjór hér þó svo að það er skítakuldi.
Já, hún Erna stóð sig mjög vel á þrekmeistaranum, fór og horfði á stúlkurnar taka þetta með stæl. Hitti Pálmar þar og var hann hress, vissi ekki að hann væri búinn að trúlofa sig (ef ég hefði vitað það þá var ég búin að gleyma því, ehe).
Hefur einhver upplýsingar um hvort Óskar sé orðinn pabbi???? En hvað átti Pálmi?????
Bæjó, Helena




Monday, April 29, 2002
 


Hvað eruð þið að fara að gera á LAugarási, er Haukur að fara að vinna þar? Eða eruð þið að fara í orlof? Hvernig hafið þið það annars, þið allar?




Sunday, April 28, 2002
 
já hæ hæ.
Laugarás er staðurinn okkar í sumar. Verðum örugglega samt mikið á faraldfæti til Reykjavíkur og bara einhvert þar sem fjörið er og einhverjir sem nenna að tala við okkur.
Jane hlakka rosa til að hitta ykkur.
Jónína þetta er rosa spennandi tími framundan hjá þer, öll skipulaggning og kjólastússið gaman gaman.......
Erna hvernig gekk?
Vaka þú er sæt og Helena líka er ég að gleyma einhverjum???
ALLIR VELKOMIR Í SVEITINA TIL MÍN Í SUMAR ENDILEGA KÍKIÐ VIÐ
Bæs pæs, Fanney



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel