left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Saturday, May 18, 2002
 
Mig langar í saumaklúbb

Þegar þið spjallið svona mikið á netinu langar mig bara heim. Smá tarrot, smá djamm, smá saumó og pínku slúður. Af mér er annars allt flott að frétta, var að koma frá New York í kvöld og heyri ennþá umferðina í NY óma í eyrum mér. Við höfðum það rosa gott og sáum ofsa margt. 'Eg var pínku skellkuð uppi í Empire State byggingu þegar flugvélar voru á sveimi yfir höfðinu á manni. Mér var hugsað til 11. september (afmælisdagsins hennar Jane). Við versluðum helling, en því miður týndist taskan á leiðinni og vonandi finna þeir hana því öll uppáhalds-fötin mín og Dodda voru í henni. Svo sá ég á vappi um í kringum fínubúðirnar (Channel... og DKNY... og fleiri sem ég kann ekki að nefna) aðalleikarann í þáttunum SCRUBBS ég var að labba fyrir aftan hann. Eftir að hafa séð hann hrundi innviði í byggingu rétt hjá og hellingur af þyrlum, löggu og sjúkraliðs og slökkviliðsbílum NYPD voru allt í kringum okkur. Og svo í gær ákváðum við að labba hring í kring um Madison Square Garden, sem er rétt hjá hótelinu okkar, okkur var litið upp á við sjáum Emmy´s auglsýsingu og allt morandi í fínu fólki og viti menn, Emmy´s var að ganga í garð. Við nenntum reyndar ekki að bíða eftir að sjá allt þetta fræga sápuóperu-lið en tókum nokkrar myndir.

Ferðasögu lokið




Wednesday, May 15, 2002
 
HÆ hæ ég er sko alveg til í saumó. Melk. er búin í prófunum þannig að hún getur örugglega komið fyrr en seinna svo hvað segið þið??Heyrumst.



 
hei Jónína segðu Helgu að koma í afmælið mitt og ´viltu senda mér netfangið hennar svo hún geti verið með okkur hér. Getum við haldið spádómssaumó einhvern tíma Jónína?



 
Hæ hó babes,
Hvernig er það Jónína, var ekki í spánni að þið stöllur þarna fyrir norðan komið í afmælið hennar Fanneyjar???? :)) Það er nú dálítið skítt að það snjói ennþá, ég er einmitt að fara á Hólmavík um helgina og veit að það var snjór og kalt þar, maður er nú ekkert tilbúinn í svoleiðis.
Sorry, en ég mun ekki hitta ykkur á einkaþjálfaranámskeiðinu en ég verð í ÚTLÖNDUM :) Við hér í Heiðarskóla erum að fara til Amsterdam strax eftir skóla, mikið gaman og mikið djamm.
Bæjó, mín að fara að kenna :)




Tuesday, May 14, 2002
 
Hey hó Jane, Helga er ekki lengur með þetta ímeil, ég get forwardað þessu til hennar. Heyrumst síðar :)




Sunday, May 12, 2002
 
óóóóóóó sorry Jane ég átti eftir að lesa seinni hlutann af bréfinu þínu svo það var hún Unnur skvís.gaman gaman

En Stelpur mínar ég hef ákveðið að halda afmæið mitt laugardaginn 25. maí í Logalandi 11 (heima hjá mömmu og pabba) Ég ætla að senda ykkur boðskort á hotmailinu og vil ég biðja ykkur um að vera svo vænar að forwarda því til þeirra sem þið hafið e-mail adressur hjá úr íkí-bekknum okkar. Gætu þið hjálpað mér með þetta? Ég væri rosalega fegin ef svo væri.
Annars segi ég bara bless i bili.



 
Hvernig í veröldinni ættum við að vita það Jane mín. Komdu með það!



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel