left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Friday, May 24, 2002
 
'EG er HRÆDD við FLUGUR

Við Doddi lögðum landu undir fót í morgun og gengum út í sundlaug, að reyna að ná okkur í smá lit. Jú jú það eru flugur á sveimi allt í kringum mann, eins og venjulega. 'Eg var farinn að halda að ég hefði eitt hálfri ævi minni í að hræðast flugur sem erum bara meinlausar skepnur. Nei nei, ein svört fluga 3cm á lengd og 1.5cm á breidd sest á bakið á Dodda og byrjar að höggva eins og spæta í bakið á honum. Hann biður mig um að ýta við henni og ég þori auvitað ekki að hrófla við kvikindinu því hún er að bora í bakið á Dodda og ég held að ég brjóti bara broddinn á henni inni í Dodda. 'Eg hefði sturlast úr viðbjóð og hræðslu ef skepnan hefði ráðist á mig. Til að koma í veg fyrir að flugan stingi mig líka, ákvaðum við að fara inn. Kannski verð ég einhvern tímann svo hugrökk að þora í sólbað aftur. Ein að sturlast úr hræðslu.



 
Frábært að þu komist Jónína. Mudnu bara það er í Logalandi 11 þar sem ég átti einu sinni heima og er kl. 20.30 rett hja Jane. Þið vitið að mennirnir ykkar eru velkomnir líka, enginn skilin útundan ok. hlakka til að sjá ykkur á morgun bæ.




Wednesday, May 22, 2002
 
Hæ hæ.
Ég er alla vega búin að tala við nokkra skólabræður okkar og þeir vita alla vega af þessu svo er bara að sjá hvort þeir mæti en ég nenni ekki að vera að pressa á fólk það verður bara opið hús og mæta þeir sem mæta vilja ok. En endilega ef þið hittið einhverja þá ítið aðeins við þeim...........
Annars er allt fínt að frétta hér.
Elísabet ég sá að þið eruð búin að selja, hvar keyptu þið íbúð??
síjú hómis bæ




Monday, May 20, 2002
 
Jane Sápuóperu Emmy´s
Td. Days of our lives og svoleiðis þættir. 'Eg hef aldrei séð svoleiðs þátt svo ég vissi ekki á hvern ég átti að horfa. Ground Zero svæðið er miklu stærra svæði en ég hélt og turnarnir voru hærri en Empire State sem er ógeð há bygging. Við stoppuðum ekki allan tíman og ég er ennþá með bólgna fætur, en hef ekki lagt af þó við höfum þrammað um alla borg. Það er allt fínt að frétta frá Alabama, við í fríi sem er rosa notalegt, en svo byrjar skólinn aftur 29. maí til 1. ágúst og af því að sumarönnin er svo stutt er hver kennslustund 2 og hálfur klukkutími (ég dey). Við förum vonandi bara í golf alla daga þar til skólinn byrjar, ég er að reyna að finnast golf skemmtileg, so far ekki nógu gaman :(



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel