![]() |
![]() iki-skvisurFriday, June 07, 2002 Jæja, það eru u.þ.b. 7 tímar þangað til að ég fer í loftið :)) En ég er ekki alveg búin að hafa mig til, týpískt að vera á síðustu stundu. Við starfsmenn í Heiðarskóla fengum styrk og förum í námsferð til Amsterdam. Við ætlum að skoða skóla þarna úti og svo koma einhverjir heim á miðvikudag en við erum nokkrar sem ætlum að vera degi lengur og komum heim á fimmtudaginn. Já, Jane mín það er ekki að spyrja af fótboltamönnunum. Þeir kunna sko líka FIMLEIKA :)) hehe. Það var nú einn sem tók 8 flikk flakk í röð og endaði í heljarstökki, hann hét skrítnu nafni og er frá Nígeríu, ef þið viljið sjá þetta stelpur þá verðið þið bara setjast niður og horfa á næsta leik með Nígeríu gegn Englendingum. Jæja, ég ætla að drífa mig í sturt áður en ég fer að sofa. Bæ í bili Helena Thursday, June 06, 2002 Hæ hæ stelpur. Ég er orðin svo mikill sveitalúði, hef ekki komist í tölvu svolítið lengi sorry. Er nú í bæjarleyfi og ákvað að skýra frá því hvers vegna ég hef ekkert skrifað ok. Frábært hjá Inga Páli og Eyju að drýfa sig í þennan skemmtilega pakka og görlsur ég mæli með honum!!!!! Annars er allt gott að frétta hér sveitalífið er ljúft en rosalega rolegt úfffff. En ég fer út á morgnana með vagninn golfkylfu og auðvitað kúlu og sippuband og tek eina létta æfingu á meðan Hildur sefur í vagninum, sippa svolítið og æfi mig svo í golfi-ágætt. Erna hvernig er í Eyjum og Helena hvað ertu að gera í Amsterdam. Hvað er svo að frétta af ykkur öllum??? kveðja Fanney Wednesday, June 05, 2002 Takk fyrir það Jane og ég mun örugglega skemmta mér vel í Amsterdam. Ég hitti Stebba Má á djamminu í Keflavík á föstudagskvöldið, hann var í óvissuferð með skólanum sínum. Það er allt gott að frétta hjá honum og var mjög hress, ekki að spyrja að öðru. Stebbi alltaf hress :):) |
![]() |