left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Wednesday, June 19, 2002
 
Hæ hæ alles.
Lífið í sveitinni er frekar rólegt, veit stundum ekkert hvað ég á að gera hér og leiðist stundum en þetta reddast. Var að byrja að prjóna mér peysu svo ég hafi eitthvað að gera.
Takk fyrir boðskortið Jónína þetta verður þrusu stuð. Hún Katla mun í sumar búa hjá foreldrum Óskars í Þorlákshöfn svo að ef þú átt símaskrá síðan úr 'IK'I þá getruðu fundið upp ´a því eða bara senda þetta heim til mömmu hennar og pabba.
VELKOMIN Melkorka. Eg sendi öllum nytt invitation um helgina sem ekki eru komnir inn á bloggerinn til okkar.
sijú beibbbbs ok. bæ




Tuesday, June 18, 2002
 
Hæ hó
Velkomin Melkorka, það er alltaf stuð hér á bloggernum. Jane mín, taktu nú upp landabréfabókina hehehe :)) Ég hitti einmitt Sigfríð í gær og hvatti hana til að koma hingað inn. Fanney, var hún búin að fá invitation??
Núna, nýt ég þess að vera í sumarfríi, loksins, mætti bara vera betra veður. Það sem bjargar mér þessa stundina er HM í fótbolta, agalegt þegar það verður búið :) hehehe.
Jónína, núna á ég heima á Garðbraut 58, 250 Garður.
Heyrumst síðar
Helena




Sunday, June 16, 2002
 
Já ég hef komið til Amsterdam, reyndar voru Fanney og Jane með mér. Við vorum í fimleika-sýningarferð. Við vorum svona 14 eða 15 ára og ég man bara að fararstjórarnir (td. pabbi) og þjálfararnir voru ekki sáttir við að við værum mikið úti ein og sérstaklega ekki á kvöldin. En það var rosa gaman í Amsterdam. Ef maður hefur einu sinni fundið lykt af hassi, gleymir maður ekki lyktinni. Helena kannski getum við orðið löggur, því við rennum á lyktina... ja eða kannski við getum fengið að vera lögguhundar... 'Eg finn mjög oft hasslykt hérna úti, enda er mikið reykt hérna í USA (nei ekki ég) og þá sérstaklega í New York (hasslyktin var bara í nösunum á manni allan daginn). Nóg um hass...



 
Jæja stelpur ég er komin heim frá Amsterdam, sem betur fer með allt mitt dót :) engu stolið og ekkert hass í töskunni við heimkomu, en núna veit ég hvernig lyktin er af hassinu, viðbjóðslega vond.
Þetta var alveg frábær ferð, mikið verslað og mikið djammað :)) Við fórum í heimsókn í nokkra skóla og var gaman að sjá hvernig menningin er hjá þeim þarna úti. Hefur einhver ykkar komið til Amsterdam??? Þetta er mjög fín borg, ég er eins og týpískur forvitinn íslendingur og skellti mér í Rauða hverfið. Þvílíka áfallið að horfa á þessar ungu dömur dansandi í gluggunum. Einnig var hrikalegt að horfa á stelpur sem eru ekki deginum eldri en 14 ára í gluggunum, þær voru ekki komnar með mjaðmir hvað þá brjóst :(( ömurlegt. Sem betur fer var mín dálítið vel í glasi og man því ekki mikið frá þessari upplifun, hmmm, en það var fullt af fólki til að passa mann og koma manni heim.
Heyri í ykkur síðar, gangi þér vel Jónína með brúðkaupsundirbúninginn :))
Helena



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel