![]() |
![]() iki-skvisurFriday, July 19, 2002 Hæ Skemmtið ykkur vel í grill-svalli hjá Jane um helgina. 'Eg vildi óska að ég gæti komið. Ætlið þið svo allar að gista hjá Jane? 'Eg fór á Moby tónleika í gær sem var rosa gaman. Upphitunar hljómsveitin var Dirty Vegas sem á Mitsubishi lagið 'Days go by' and still I thing of you (kannist þið ekki við það??? 'Eg var að spá hvort Sonja væri búin að eiga, átti hún ekki að eiga í júlí?? Og hvað með Hildi, Fanney er hún farin að sitja, eða er hún kannski farin að taka flikk flakk heljarstökk, hnakka og hliðarstökk um alla ganga? Látið vita hvernig grillið hjá Jane lukkast? Monday, July 15, 2002 Hæ hæ girls. Takk æðislega fyrir frábært brúðkaup Jónína þið voruð æðisleg. Hvernig var svo brúðkaupsnóttin og dagurinn eftir? Við Jane, Helga og auðvitað Agga Slæ skemmtum okkur konunglega og það var rosalega gaman að hitta Helgu aftur eftir langan tíma. Við lúlluðu hjá henni á Akureyrinni fyrri nóttina. En Agga hafði engu gleymt varðandi leiðinlega kæki og annað slíkt. Við Jane vöknuðum báðar um nóttina við ýmiss sog og önnur búkhljóð sem komu frá henni (ég veit ég er ömurleg að segja svona). Við fórum svo á ball í Glaumbæ sem er böbbinn á Ólafsfirði og þar var hljómsveitin GSM sem var bara þrusugóð og okkur fannst bara gaman. Sem sagt frábær helgi og ógeðslega gaman. Sjáumst vonandi sem flestar hjá Jane á laugardaginn næsta, bæ. |
![]() |