![]() |
![]() iki-skvisurFriday, July 26, 2002 Styttist í endan á þessu Kennslu er formlega lokið og sumarprófin að ganga í garð. Við ætlum að reyna að vera dugleg og einbeita okkur að lestri, þrátt fyrir að vera komin með skóla síþreytu. Það var brjálað þrumuveður í gær. 'Eg hef ekki séð svona margar eldingar aftur og aftur á sama stað út um sama litla gluggan í einu. Rafmangið fór af og allt og við sátum við kertaljós, bjór, poppkorn og spiluðum Sequence. Það hefur verið mikið um þrumur og eldingar í sumar, það tilheyrir sjálfsagt. Samt sem áður eru allar grasflatir sólbrenndar og aumar. Vá Vá, er Halla Karen 2ja og hálfs. 'Eg hef ekki einu sinni séð hana. Hverjar eru að fara á Flúir??? Góða skemmtun á Flúðum. Já og velkomnar á Bloggerinn stúlkur, þið lumið væntanlega á slúðri eftir langa fjarveru frá Bloggernum. Leysið frá skjóðunni og látið slúðrið frjálst á meðal okkar... Thursday, July 25, 2002 hæhæ og velkomin Helga mín. Jú ég vaknaði líka hress á sunnudagsmorgni sem betur fer. Hlakka til Kötlupartýs. bæ |
![]() |