![]() |
![]() iki-skvisurFriday, August 09, 2002 Hæ hæ ég var að heyra í Sonju og hún eignaðist strák í gær. Hann var 15 merkur og 53 cm. og öllum heilsast bara vel líka pabbanum hahahah. síjú beibs ps. vonandi er ég ekki að eyðileggja neitt fyrir Sonju með að segja ykkur þetta - þið vitið ef hún hefði viljað segja ykkur þetta sjálf !! bæ pæs Thursday, August 08, 2002 Hæ hæ. Ég er bara hress en þið. Mel. velkomin heim ég öfunda þig að hafa fengið að fara út en við Haukur erum að reyna að láta okkur dreyma um haustferð. Ég talaði við Betu og Ernu um daginn og þá var hljóðið í þeim bara eftir atvikum gott mun metra en það var 2 dögum áður en ég hringdi í. En er ekki bara betra að þær segji slúðrið sjálfar. Hefur einhver heyrt í Költu og saumó? Hildur litla rúsínuhrúgan mín er farin að ganga 9 1/2 mánaða. Hún var farin að taka nokkur skref sjálf þegar hún var 9 mán. en núna er hún bara köld og lætur sig vaða ekkert smá dugleg, eða það finnst okkur alla vega. Nú er ég að byrja að vinna eftir viku úúffff.... Eg er flutt heim úr sveitinni só síjú leiter, bæ Wednesday, August 07, 2002 Hæ Við Þórður vorum að flytja, alltaf að flytja, erum alveg komin með óóógeð á að flytja. Mig langar að eiga heima einhvers staðar annars staðar en í ferðatösku og kössum. Við erum í sumarfríi og njótum sólarinnar, reyndar er Doddi að vinna á einhverju fótbolta námskeiði, en hann er fótbolta karl svo honum ætti ekki að leiðast. Við vorum síma og sjónvarpslaus í nokkra daga eftir að við fluttum og þvílík hörmung. 'Eg komst líka að því að ég er sjónvarps og internet sjúk. Boðar ekki gott. 'Eg er alveg að verða Ameríkani. Næst fer ég að éta prosac og McDonalds... Eða klæðast Mikka og Mínu fötum. 'Eg er í sumarfríi, man ekki eftir að hafa nokkurn tímann verið í sumarfríi, svo það er eins gott að njóta þesssssss. Hafið þið eitthvað heyrt í Betu? Það er hrikalegt að lesa fréttirnar og ruglið í þessum Eyjamönnum. Beta þú ert svo mikill nagli, ég hefði bara drukknað í eigin táraflóði og ekki getað gert neitt. Góð samsataða, áfram Beta og Erna! |
![]() |