![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, August 17, 2002 Þetta er ekki hægt 'Eg er búin að kíkja 4 sinnum inn á bloggerinn og enn hefur enginn skrifað neitt. (Grín). Ein sem þráir slúður... ...slúður.plís Wednesday, August 14, 2002 Orðin brún Loksins er ég orðin brún, hi hi. Bara að reyna að glenna góða veðrið framan í ykkur. Annars er ekkert grín að vera í svona hita og raka alla daga, enda er ég alltaf inni... Go melkorka, you can do it! Nú eru fyrstu 'Islendingarnir að lenda í kvöld, og úti um friðin, grín. 'Eg er búin að kaupa mér one way ticket til 'Islands í desember svo mér finnst ég alveg að koma heim. En ég verð að bíða í 4 mánuði þar til ég kem heim. Monday, August 12, 2002 Hei hei alle huppa Hvað er að frétta stúlkur? Jaja ég er að fara að kenna aftur í Fossvogsskóla og úff það verður eitthvað skrítið þvi ég er búin að hafa það svo skrambi gott í næstum heilt ár. En er rosa gott veður hjá ykkur og þú brúnkar og brúnkar á meðan ég hvítna og hvítna, ekki gaman. Hvenær kemurðu heim, láttu mig vita með fyrirvara svo ég geti farið í nokkara ljósatíma híhíhí En af hverju eru þið búina að vera að flytja svona oft núna? Finnst ykkur ekki gott hja Lúffu að koma og sigra Íslandsmótið?? Alveg hreint ljómandi, (ég er búin að svara fyrir ykkur) Annars er ég rosa mikið ein næstu 2 vikur þannig að ef ykkur langar til að gera eitthvað þá endilega talið við mig, eða komið í heimsókn ég er alltaf heima, eða oftast. Verið duglegar að bulla á bloggerinn, bæ. Sunday, August 11, 2002 Sonja orðin mamma, Vá Fanney ert þú að fara að kenna í Fossvogsskóla eða ertu að fara að gera eitthvað annað, bara forvitin. Hildur farin að ganga ekkert smá spræk bara 9 mánaða... ert þú ekki komin í rosa form á að hlaupa á eftir henni?? Við Doddi skelltum okkur á djammið í gær í Birmingham ásamt 'Islendingunum þar. Nú liggjum við bara í leti og njótum þess að vera í sumarfríi. Fótboltinn hjá Dodda byrjar svo á miðvikudaginn, 3 æfingar á dag í 40 stiga hita (algert bull), og þá er sumarfríið hans á enda. 'Islendingarnir fara svo að týnast til landsins í vikunni og við eigum von á um 5-7 nýjum 'Islendingum, sem er mjög mikið. 'Eg er að verða brún því þegar maður er í sumarfríi þá hefur maður tíma til að liggja við sundlaugina og sóla sig. |
![]() |