left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Friday, August 23, 2002
 


'Eg er að missa af öllu, en á næsta ári get ég vonandi hitt ykkur meira. Erna er litla systir í Thomasville? Er hún að spila í NCAA eða NAIA, ef hún spilar í NAIA þá spilar hún kannski við stelpurnar hér.... 'A Beta bekkjarsystir sumarbústað?? MElkorka ertu búin að skipta um æfingastöð, ertu farin yfir til Lindu og Sævars?? JAne, enn og aftur til hamingju með ástandið, vildi bara að ég gæti séð kúluna, ég elska óléttu kúlur... Doddi hélt smá afmælisboð hér í gærkveldi þar sem 'Islendinga hópurinn (fult af nýjum 'Islendingum) fékk að hittast aðeins.




Thursday, August 22, 2002
 
Hæ hó allar saman!!
Af mér er allt fínt að frétta, skólinn auðvitað byrjaður en ég er voða lítið búin að gera undanfarna daga. Ég verð einungis að kenna íþróttir og sund í vetur, og verður gaman að prófa að kenna bara það því ég hef alltaf verið að kenna fullt bóklegt með :)) Annars verður brjálað að gera hjá mér í vetur. Ég er að fara í nuddskóla Íslands og byrjar hann núna á miðvikudaginn. Skólinn er sem sagt á þriðju-, miðviku- og fimmtudögum og svo aðra hvora helgi (föstud., laugard. og sunnud.). Einnig þarf ég að taka 2 bókleg fög í Ármúla.
Ég hef auðvitað notið þess að vera í sumarfríi í sumar, búin að vera á flakkinu síðan um miðjan júlí og mikið djammað :)) Já og Helga takk fyrir síðast :)) við hittumst á Kántrý um verslunarmannahelgina, mikið gaman og mikil rigning.
Stelpur mínar, það er nú kominn tími á að hittast og gera eitthvað saman. Agalegt hvað það líður langt á milli þess þegar við hittumst, þurfum að gera eitthvað í þessu. Jæja, hlakka til að heyra í ykkur
Bæjó, Helena




Tuesday, August 20, 2002
 
Þegar ég sagðist hafa þráð slúður, átti ég ekki við eitthvað sérstakt slúður. En mig er farið að gruna að ég viti lítið um hvað er að gerast heima á klakanum. Strákurinn þeirra Sonju og Elvars er algert krútt.

Komið þið með þetta




Monday, August 19, 2002
 
Heheheheh ég veit líka slúðrið :))))




Sunday, August 18, 2002
 
Jane komdu með þetta slúður, ekki hægt að skrifa svona og ekkert meir :)) Því miður get ég ekki sagt ykkur neitt slúður, sorry þannig að ég hef ekki verið dugleg að skrifa hér. Nú er maður byrjaður í vinnunni aftur þannig að það verður gaman að sjá hvernig það gangi að fara að vakna aftur á morgnanna, ehe.

Hlakka til að heyra slúðrið þitt Jane :)) láttu það flakka



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel