left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Friday, September 13, 2002
 
Screamið ...um hvað eruð þið að tala, hver var að garga og hví var sá að gara?



 

Takk Jane fyrir kaffið og gaman að hitta þá sem ég hitti þar. En Helena hann vildi lítið gefa út á Scream-dæmið. Snéri bara út úr held ég en ég er ekki hætt, held aftur áfram fljótlega.




Thursday, September 12, 2002
 
Fanney, ég gleymdi að spyrja þig í gær hjá Jane, en varstu búin að heyra eitthvað meira frá Ella í sambandi við Screamið :) hehehe. Endilega láttu það koma ef hann hefur sagt eitthvað meira, verður bara að vera dugleg að skjóta á hann :)
Já, Jane takk æðislega fyrir kvöldkaffið. Mjög gott að fá kaffi rétt fyrir svefninn en ég sofnaði um leið og ég kom heim, mikil þreyta þessa dagana :(
Heyrumst síðar
Helena :)



 
Erna ertu ennþá 25 ára?
'Oþarfi að vara að strá salti í sárin, við vitum allar að klukkan tifar. Og ef eitthvað þá held ég að klukkann tifi hraðar og hraðar með hverju árinu sem líður. Hafið þið einhvern tímann setið í mestu makindum og þá allt í einu heyrt stofu klukkuna tifa tikk, tikk, tikk, t... Þetta er hræðileg tilfinning, maður finnur tíminn hleypur frá manni. Það er sama hversu ákveðinn maður er í að njóta tímanns, hverrar sekúndu, næsta sekúnda skellur á áður en maður veit af. Þetta er eins og að keppa í 100m hlaupi á svelli á meðan hinir meiga hlaupa á tartan. Gott ráð til að nota tímann sem best er að gera gera hlutina í staðin fyir að spá í þá eða velta sér upp úr ef ég hefði... Þó það komi annar dagur eftir þennan dag, þá er sá dagur líka svo ofhlaðin verkefnum að ekkert verður úr nema streita og klukkan heldur áfram að tifa tikk, tikk, eins og ekkert sé. Það voru snillingar sem komu upp með orðatiltæki eins og: af hverju að gera það sem þú getur í dag á morgun, og hálfnað er verk þá hafið er. Jæja, best að fara að taka til, ég nenni því ekki en ég veit að um leið og ég byrja, styttist í að ég verði búin. Nei, ég er ekki orðin klikkuð, hafði bara ekkert fréttnæmt að segja.
Af stað...




Wednesday, September 11, 2002
 
Til hamingju með daginn Jane.

Teldu fingur frekar en hrukkur, það hjálpar manni að halda sér í andlegu jafnvægi. Breytingar eru ekki alltaf af hinu góða... Spakmæli Vöku.
'Eg er að grínast -



 
Hæ alles
Jane innilega til hamaingu með 25 ára afmælið og velkominn í hópinn. Við verðum ekki öldungar fyrr en við verðum 29 ára svo þetta er allt í lagi ennþá hhahahahahah.
Hvernig hefur þu það annars og hvernig finnst þér að vera orðin svona stór. Ég ætla að koma í kaffi til þín í kvöld með Melk. og Kjartani. Sjáumst þá er það ekki bæ.



 
Jane mín, þó svo að ég sé búin að hitta þig í morgun og óskar þér til hamingju með afmælið þá ætla ég líka að óska þér til hamingju hér á bloggernum :)) svo enn og aftur til hamingju með afmælið :)
Hlakka til að koma til þín í kvöld í kaffi.
Ciao



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel