![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, September 21, 2002 Go Helga 'Afram fimleikar. Thursday, September 19, 2002 'Eg aftur hérna Var ég búin að segja ykkur að ég bý með þremur karlmönnum. 'I fyrra bjuggum við Doddi með strák sem heitir Siggi Sighvatsson og nú búum við með Sigga og Hilmari. Sem sagt ég bý með 3 strákum. Auðvitað er ég prinsessan á bauninni hérna, og ég læt strákana ekkert komast upp með að láta konuna sjá um mat, tiltekt og svoleiðis puð. Langaði bara að segja ykkur frá heimilishaldinu hér í Montgomery. Hér er ennþá sól og blíða flesta daga, og ekki von á að veðrið fari að kólna fyrr en í nóvember... bæ, have a nice saumó Fyrirgefið! En er Melkorka í sjónvarpinu??? Er Melkorka orðin sjónvarpsstjarna í einhverjum þætti, eða var hún bara í einum þætti... Og stelpur plís segið þið alla söguna, fyrir okkur sem erum langt í burtu og heyrum ekki byrjununina á sögunni. Það er nógu leiðinlegt að missa af öllu fjörinu! Luv Vakan HÆ ERu þið búnar að sjá Melkorku ´´i sjónvarpinu í Haukur í horni á Skjá 1 mynnir mig.Endilega kíkiði. Hlakka til að hitta ykkur á mánudaginn bæ Sunday, September 15, 2002 Til hamingju með afmælið Erna, nú ertu ekki lengur 25.. ; ) Hæ hæ alles, Erna til lukku með daginn, var gert eitthvað sérstakt í tilefni dagsins?? Stelpur, munið ekki eftir Scream dæminu???? Þegar strákarnir fóru inn í herbergin á nóttunni í scream klæðum!! Þeir komu inn til mín og Ernu og skildu eftir miða eins og í myndinni, við vorum skíthræddar :))) Vinur hans Guðna Erlends. er með mér í nuddinu og hann sagði mér frá því að hann og Elli vinur hans hefðu verið að hræða alla með grímuna, þannig að við fengum áreiðanlegar heimildir fyrir því hverjir þetta voru. Það er ein að vinna með mér (útskrifaðist í vor frá íþróttaskori) og hún sagði mér að þeir hefðu líka verið með þetta þegar þær byrjuðu í skólanum. Jæja, hlakka til að sjá ykkur í saumó hjá Hildi en ég er í fríi það kvöld, jibbíí. Ciao, Helena |
![]() |