![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, October 26, 2002 Já til hamingju með afmælið hjá prinsessunni Fanney. Hafið það gott! Vaka Friday, October 25, 2002 Ég segi það nú líka Vaka, þú að tala um kulda ó mæ god mig langar í hitann til þín sama þó það sé ekki sól. Wednesday, October 23, 2002 HÆhæ. Hjá mér er allt fínt. Hildur varð 1 árs á sunnudaginn. Tíminn er rosalega fljótur að líða. Svo það voru veiluhöld um helgina og voða fjör. Annars er tölvan okkar orðin hress að hluta til, svo eitthvað get ég nú farið að krafla í henni. Allt á kafi í snjó díses kræst segji ég nú bara. Annars var ég að kaupa mér fjallabíl í síðustu viku ef fjallabíl skal kalla. En hann er alla vega meiri fjallabíll en við áttum. Svo það verður gaman að prófa hann í snjónum þegar hann kemur. En vonandi verður smá bið á honum. Annars segji é g bara góða ferð Erna mín og skemmtu þér rosa vel það er reyndar ótrúlega langt síðan eg hef heyrt í þer. ....og Jane þú mátt alveg senda myndir af þér svo við getum séð kúluna. Sonja sendi mér æðislegar myndir af litla prinsinum. Allt voða skemmtilegt. En jæja bæbbssss..... Fannsla Tuesday, October 22, 2002 Já Jane og hvað er númerið hjá þér? Mitt er 334-270-5942 Sunday, October 20, 2002 Hæ Allt fínt að frétta frá Alabama. Reyndar er farið að kólna aðeins í veðri, og undanfarna daga hefur ekki verið nema um 25 stiga hiti. Eitthvað kuldakast í gangi, því veturinn á ekki að byrja alveg svona snemma. Jane, hvernig er í the sunshine state??? Og hvernig hefur Pooh það í sólinni? 'Eg er á fullu að skrifa ritgerðir og læra undir próf, svo ég er eiginlega að stelast til að vera á netinu, eins og þið sjáið hef ég greinilega ekkert að segja. Sjáumst í des. |
![]() |