![]() |
![]() iki-skvisurWednesday, October 30, 2002 Fanney mér líst vel á að hitta gamla fimleikahópinn okkar. Annars er ég obboðslega bissý í skólanum núna og ég held að ég fái ekki pásu fyrr en eftir lokapróf. Stundum hef ég ekki einu sinni tíma til að fara og æfa.... Þá er virkilega mikið að gera. Annars er sól í dag, í fyrsta skipti í 2 vikur, en enginn tími til að njóta blíðunnar. Hvað er barnið (er það stelpa) hans 'Oskars gamalt. Mér finnst eins og allir í bekknum séu að verða eða eru orðnir foreldrar. 'Otrúlegt! Hva nennir enginn að skrifa eða hvað. Er í skólanum núna en það eru foreldravitöl. Á morgun byrjar svo vetrarfrí svo ég fer ekkert að kenna fyrr en á mánudaginn aftur lúxus. Hitti Óskar í sundi um síðustu helgi og hann sagði mér að hann væri að fara að gifta sig næsta sumar þann 12. júlí í Bústaðakirkju. Hann er ekki lengi að krækja sér í eina konu, barn, íbúð, bíl og svo giftingu. Er þetta ekki bara Óskar í hnotskurn. ALLT POTTÞÉTT. En annars lá bara vel á honum. Hvað er annars að frétta af ykkur skvísur? Erna hvernig var í útlöndum. Vaka við Guðrun Erla vorum að spá í að hafa fimleikaparty með öllum gamla hópnum og Önnu Henriks bestu vinkonu þinni fljótlega í janúar. Hvernig líst þér á það? Ætlum að senda út bréf um þetta til stelpnanna svo þær viti alla vega af þessu og þetta sé í vændum. Jæja síja bæ Fanns |
![]() |