![]() |
![]() iki-skvisurTuesday, November 05, 2002 Til hamingju með þrekið Erna Lind. Þú ert stolt okkar íþróttakennarana. Talandi um íþróttakennara, vitið þið um lausa kennara/íþróttakennara stöðu eftir áramót. Ég er nefnilega að spá í að fara að kenna þegar ég kem heim og leita mér svo að draumastarfinu þegar ég er komin til landsins. Svo virðist ekki vera mikil vinna í boði fyrir viðskiptafræðinga, og þá er gott að hafa kennarann. Svo ef þið vitið um eitthvað, þá er mér fúlasta alvara, því mamma mín (sem er kennari) var að segja mér að það væri ekki svo mikið um lausar kennara stöður. Sonja hæ og velkomin til okkar loksins. Nú er bara að vera duglega að uppljóstra kjaftasögunum eins fljótt og hægt er. Monday, November 04, 2002 Halló og góðan dag. Já eg er til í saumó því fyrr því betra. Vaka stlpan hans Óskars er fædd í maí svo hún er að verða 6 mánaða. Annars er ég voða ánægð að snjórinn sé farinn héðan en keypti samt öflugar sköfur í nýja bílinn fyrir næsta hret. Annars fékk Hildur afmælisgjöf frá frænda sínum sem býr í USA svona Halloween- búning sem er fíll. Með skott og rana og allt. Hún fékk auðvitað að máta hann og hún varð svo ánægð og hljóp að speglinum aftur og aftur til að skoða. Pjattið byrjar snemma. Svo varð hún ek´ki sátt þegar ballið var búið og það átti að fara úr búningnum. Þetta var algers skemmtum og ég hlakka til öskudagsins. bæbæ Saumó fljott |
![]() |