![]() |
![]() iki-skvisurFriday, November 15, 2002 Jane þú ert ekkert smá sæt, og nett með þessa kúlu:) Erna ég hitti systur þína í gær því hún er að keppa hér yfir helgina. Varðandi saumaklúbba, þá er ég farin að hlakka mikið til að komast í klúbbana. Ég er alveg tilbúin í að éta manna mest af íslensku nammi og kræsingum. Thursday, November 14, 2002 Hæ hó, Gaman að sjá bumbumyndir Jane :) Stelpur, ég er alveg til í að halda saumaklúbb einhvern daginn en ég er auðvitað í skólanum flest öll kvöld, nema á mánudagskvöld og þá vill maður helst ekki gera neitt, hehehe. Ræðum það bara í næsta saumó. Fer samt að líða að því að ég fer að nudda og safna tímum og mun ég líklega nota mánudagana í það. Ætla að safna eins mörgum tímum og ég get áður en skólinn klárast. Síja leiter, Helena hæ. Ég get alveg haldið saumó en ekki fyrr en í næstu viku. Það er ekkert mál. EN Helena langar þig ekkert að halda saumó bráðum? Ég læt ykkur vita ok. sjáumst bæ Wednesday, November 13, 2002 Hæ hó, Sonja, ég er í Nuddskóla Íslands, það er skóli þriðju, miðviku og fimmtudagskvöld. Svo er önnur hver helgi, föstu, laugar og sunnudaga :) Svo er ég líka í fjarnámi frá Fjölbraut í Ármúla, þarf að taka 2 fög. Þannig að það er nóg að gera, þyrfti 10 klst. auka í sólarhringinn til að gera allt það sem ég þarf að gera. Heyrumst síðar, Helena Monday, November 11, 2002 Hæ Gaman að þið stúlkur skulið vera að streyma inn á bloggerinn, því fleiri, því meira slúður!! Sonja, við Doddi fórum bæði í viðskiptafræði, Doddi í markaðsfræði og ég í hagfræði. Það var ofsa gaman að prufa að læra eitthvað nýtt, því ég var á íþróttabraut í fjölbraut og svo fór ég beint í íþróttakennarann, svo viðskipta heimurinn er alveg nýr heimur fyrir mig. Annars er allt fínt að frétta af okkur, nóg að gera í skólanum og lítill tími til að klára öll verkefni sem fyrir liggja. ´'Eg lá vakandi í nótt vegna þvílíks þrumuveðurs sem gekk yfir. 'Eg var alveg skíthrædd og Doddi bara svaf.... Herbergið mitt sem er með tvöflöld dökk gluggatjöld var eins og dískó friskó herbergi og lætin eins og það væru loftárásir hér allt um kring. 'Eg er að hugsa um að leggja mig eftir átök næturinnar. Sunday, November 10, 2002 Jæja stelpur, Hjá mér er allt gott að frétta, brjálað að gera í skólanum, þ.e. í öllum skólunum mínum. Var í prófi í síðustu viku og nýir áfangar að byrja í nuddinu. Svo er próf hjá mér í byrjun desember sem ég verð að fara að læra fyrir og svo auðvitað sjálf að kenna, alltaf stuð þar. Annars vildi ég bara láta ykkur vita af því, þær sem vita þetta ekki, að Ingi Páll er orðinn pabbi :) Þeim fæddist stúlkubarn 8. nóvember og var hún 12 merkur og 51 cm. Heyrumst Helena |
![]() |