![]() |
![]() iki-skvisurThursday, November 21, 2002 Hæ og hó Vá er Elli búinn í skólanum svona snemma?? Við komum ekki heim fyrr en 20.des en skólinn er búinn 13. des. Dodda fannst leiðinlegt að Embry hafi ekki komist í úrslit, en það eru víst einhverjir íslenskir strákar í Flagler í staðinn (skólanum sem vann Ella skóla). Strákarnir kepptu sinn fyrsta leik í úrslitunum í dag og unnu. Nú er bara að duga eða drepast hjá þeim, ég er orðin vön að sofa ein í viku því þeir hafa alltaf farið í úrslitakeppnina og keppt úrslitaleikinn. Nei við tökum ekki með okkur gám heim, það stóð til að við (3 pör) myndum sameinast um gám, en það var hætt við það. Ég verð bara að skilja flotta gasgrillið mitt eftir. Við höfum í raun ekki keypt nein húsgögn, bara verið með notað og ljótt. En við komum til með að vera með vel úttroðnar ferðatöskur. Já svo verðum við að hittast fyrir, um eða rétt eftir jólin stelpur. Ég held að Jane verði sú eina sem nenni að lesa þessa orðsendingu. Hæ hæ Melkorka me´r líst líka vel á þessa tillögu og held að við ættum að taka hana upp strax eftir jól. Ég meina hver manneskja hefur 1 mánuð ca. + - eitthvað til að halda saumó svo ég held að þetta ætti ekki að verða neitt vandamál hjá neinum. Svo má þá bara líka halda þetta um helgi (um dag eða kvöld) ef ekki er hægt að halda á virku kvöldi. Gaman væri að hittast og borða saman um jólin einhvern tíma eða fyrir og gaman væri auðvitað að hittast áður líka þegar Jane kemur heim. Sjáum til. bæ Wednesday, November 20, 2002 Ein í kotinu Ég sit ein í kotinu eftir að strákarnir fóru í keppnisferð til Kentucky, og verð sennilega ein heima fram á miðvikudag ef strákarnir fara í úrslitaleikinn. Það er nóg að gera hjá mér í skólanum eins og alltaf, ég er til dæmis að vinna í 5 ritgerðum, ásamt öðrum verkefnum. Svo er stutt í lokapróf, en enginn tími til að lesa fyrir þau... Þannig að ég geti ekki sagt að ég sé aðgerðarlaus, en mér leiðist að hafa svona mikið að gera, það væri svo gaman að geta slappað pínu af og glápt út í loftið. Fyrsti leikur strákanna er á morgun og ef þeir tapa leik verða þeir sendir heim með skít og skömm (grín en þeir verða samt sendir heim). Er ég búin að skrifa tvisvar í röð á bloggerinn..... Mér líst vel á þetta Melkorka. Ekki vissi ég að klúbburinn okkar væri í svona slæmum málum, öfundaði bara þær sem gátu mætt. En það er alveg satt það verður að vera einhver basic rútína á þessu, annars eru alltaf þær sömu sem halda (og þær sömu sem sleppa). Stafrófs röð, aldurs röð, lita röð.... allavega þurfum við að hafa einhverja röð eða form á þessu. Ég gef tillögu Melkorku mitt atkvæði og vil svo bæta við að ef, ef, ef, maður lendir á að geta ekki haldið klúbb, getur maður kannski samið við einhverja um að skipta um dag. Ég legg einning til, ef það er ekki til nú þegar að við búum til síma og eða netfangasrká til að auðvelda okkur fyrir. Best væri náttúrulega ef allar væru virkir Bloggerar. Ég er sem sagt til í allt. Og vonandi hittumst við allar sem fyrst..... eftir að ég kem heim. Nóvember kveðja Vaka |
![]() |