![]() |
![]() iki-skvisurThursday, December 12, 2002 Hæ Vaka til hamingju með prófin. Mamma þín sagði mér einmitt að hún væri á leiðinni til þín. Þetta verður nú ljúft. Annars vona ég líka eftir saumó og ætli það verði ekki bara hjá Melkorku ef hún ætlar ennþá að halda, ef ekki, þá reddum við því bara. Við skulum alla vega hittast fyrir jól það er eitt einasta markmiðið sem við skulum setja okkur er það ekki? Þetta hefur verið frekar lélegt í haust, hittumst síðast hjá Hildi 23. sept mynnir mig.ussss ekki nógu gott. En alla vega verum í sambandi því það fer að líða að þessu ok. bæ Wednesday, December 11, 2002 :) :) :) jibbí jeij Ég var að klára prófin. Ég er sem sagt búin með skólann og er að fara að útskrifast á laugardaginn. Ég er svo ógeðslega glöð að þið trúið því ekki. Ég er svo þreytt en það er ekki nokkur leið að ég sofni (var í kvöd prófi) því þetta er svo gaman. Svo koma mamma og pabbi í heimsókn á morgun og svo erum við á leiðinni heim. Vildi bara deila gleðinni með ykkur Monday, December 09, 2002 Já Fanney ég er að fara að kenna í Ingunnarskóla í Grafarholti, og er að fara kenna sérkennslu. Ég er bara þokkalega spennt, en þó aðallega spennt yfir að vera að koma heim og komast í jólafrí.... Svo klárar maður prófin á miðvikudaginn ííhaaa. Hæ hæ Jane og Ólöf, velkomnar til landisins. Já við verður endilega að hittast ég held að það sé komin nógu langur tími f´ra því ´síðast eða hvað finnst ykkur. Hefur einhver heyrt í Betu? Ég væri sko alveg til í að koma norður í einn saumó eða svo ef veðrið er fínt einhvern tíma. Það gæti verið geggjað held ég. Vaka er það satt sem ég heyri að þú sért að fara að kenna í Ingunnarskóla í Grafarholtinu eftir áramót? Hvenær kemur þú heim aftur ég er ´búin að gleyma. En alla vega reynum að hittast sem fyrst það er orðið allt og langt liðið síðan síðast ok. bæ |
![]() |