left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Friday, January 03, 2003
 
Hæ hæ.
Gleðilegt ár allar saman. Gaman að allar hafi átt gleðileg jól. ´Ég held að það verði bara góð mæting í pizzuna hjá mér á sunnudaginn. En bara svona til að segja ykkur þá verður þetta heimalöguð pizza að hætti Fanneyjar og áleggið verður bara skinka, sveppir, paprikka, kannski smá tómatar og líka kannski smá laukur á hluta því ég veit að Melkorka borðar ekki lauk (eða er það ekki rétt?) Þær sem vilja ekki eitthvað af þessu verða bara bíta í það súra epli og plokka vonda dótið af ok. En allar þið sem búið úti á landi píur ef þið verðið í bænum þá endilega látið sjá ykkur á sunnudaginn hjá mér í Hólmgarði 50 kl. 19:30. Nýjar kjaftó allaf vel þegnar.
Vonandi komast allar og sem flestar. Sjáumst bæ



 
Hæ hæ

Í sambandi við saumóinn á sunnudaginn þá hringdi ég í Ólöfu og hún ætlaði að reyna að koma og svo hitti ég Sigfríð í Smáralind og sagði henni frá klúbbnum og hún sagðist því miður fljúga norður á sunnudags morgun!!
Hlakka til að hitta ykkur





Tuesday, December 31, 2002
 
Hæ stelpur, ég var búin að hugsa um að ég gæti haldið saumklúbbinn á sunnudeginum en eins og staðan er í dag þá efast ég um að ég geti það, sorry. Vona að einhver önnur geti haldið saumaklúbbinn í þetta sinn en ég get boðið ykkur við eitthvað annað tækifæri.

Annars óska ég ykkur gleðilegt nýtt ár og hafið það gott það sem eftir er af fríinu.




Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel