![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, February 08, 2003 Jane! Mér finnst þú týpan til þess að eiga stelpu og þess vegna giskaði ég á stúlku, en mig grunar samt sem áður mjög mjög sterkt að þú gangir með dreng undir belti. Hvenær ertu sett núna?? Og hvernig er heilsa og almenn líðan? Vaka forvitna! Wednesday, February 05, 2003 Vá hvað þið eruð orðnar duglegar að skrifa stelpur... haldið bara áfram að vera svona duglegar! Jane! æðislegar myndir að þér á síðunni þinni, mig langar samt að sjá eina mynd af þér með hendur niður með síðum eða fyrir aftan bak svo ég sjái hvað 'bollan' (hi hi ég meina kúlan er stór). Mamma kallar óléttukúlur bollur svo Jane ekki taka því illa. Af mér og mínum er bara allt fínt að frétta, ég þyngist og þyngist og þegar ég vaknaði í morgun passaði ég ekki í buxur svo ég dreif mig í óléttubúð en fór bara hlægjandi út því ég á ekki heima í svona óléttubuxum sem eru of víðar í mittið og of þröngar á lærunum, er ekki gert ráð fyrir konum með bryggjustólpa (stór læri). En allavega ég er á bömmer því ég passa ekki einu sinni í óléttubuxur.... hi hi! Næsti klúbbur Hildur mín verður hjá Betu fimmtudaginn 13. febrúuar kl. 19.00, er það ekki Beta, alla vega eftir því sem ég best veit. ok. síjú ðenn alles bæbæ Monday, February 03, 2003 Hæ hæ. Jane ég held að þú gangir með stelpu. Mannstu, eða ég man reyndar ekki hvort ég sagði þér frá því en í haust þá dreymdi mig að þú værir að reyna að fá mig með þér til London og þú varst alveg að vera komin að því að eiga. Ég var svo stressuð að radda vöggunni fyrir þig og var á fullu að vinna í því að festa á hana rauðar slaufur. Svo é gheld að það verði stelpa. Ekki það að ég sé þekkt fyrir það að vera berdreymin en það er alltaf gaman að spá og ef þetta reynist rétt þá er það bara gaman en yfirleitt eru draumarnir bara eitthvað rugl og ekkert hægt að taka nokkurt mark á þeim. En hvað haldiði að hafi komið fyrir mig i morgun. Ég var að kenna 11 ára krökkum í 1. tíma. Ég var að ná í bolta í boltagrind og fékk fyrst bolta í mig sem var ekkert vont en svo var ég að færa mig eitthvað og rek hnéið í eitthvað drasl á grindinni. Það var svo ógeðlega vont að ég greip í rimlana og hélt í þá svo fann ég bara að ég hélt fastar í rimlanda og svo fór allt að verða svart og ég heyrði bara skerandi suð og læti. Það sem sagt leið yfir mig. Sem betur fer skall ég ekki í gólfið, eg einhvern vegin hélt fastar í rimlana en ég hékk bara í þeim og lá svona frammi. Svo rankaði ég við me´r og beigði mig niður með hausinn á milli fótanna. Ég hélt að enginn hefði tekið eftir þessu en ég frétti það svo frá sturtukonunni (en hún var akkúrat ínni í sal, en sá þetta ekki) að stelpurnar hefðu séð þetta og voru að spyrja hana hvað hefði komið fyrir ohh ömurlegt og ég var að vonast til þess að enginn hefði séð þetta. En ég er bara svo fegin að hafa ekki dottið í gólfið því eg hefði dottið bint á hausinn því ég hékk frammi og á ská og alla vega. Ótrúlegt að ég hafi náð að halda mér á fótunum. Svo fór ég bara upp og fékk mér að borða, en ég er enn svolítið skrítinn í höfðinu og búknum. En ´ge hef alveg getað kennt svo þetta hlýtur að ganga yfir. En ég veit ekki hvort þetta var vegna sársaukanst eða einhvers annars. En það var allt í lagi með mig áður og ég hef oft fundið verri sársauka, en ég hef kannski bara hitt á einhverja taug eða eitthvað. Jæja reynslusagan mín er búin hahahahah síjú beibs bæ Sunday, February 02, 2003 Stelpa |
![]() |