left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Friday, February 21, 2003
 
hÆ HÆ GIRLS
Hvernig líst ykkur á partý laugardaginn 7. mars. Þá ætla strákarnir að vera með ´sin tíðu matarboð heima hjá Torfa og svo á að djúsa á eftir á einhverjum stað. Muniði þegar við gerðum þetta fyrir 2 árum. þá fórum við stelpurnar í smá dekur í Bláa lóninu og fórum svo og fengum okkur að borða og hittum strákana þar og sumir gerðu svo eitthvað á eftir. En eins og þið vitið þá var það bara vegna þess að Óskar var ekki með í för að engin samstaða fékkst um það hvert skildi halda eftir að hungrið hafði verið seðjað. En það á að reyna að hafa hann með í þetta sinn svo einhver geti tekið stjórnina. Hvernig líst ykkur á þetta, hafði áhuga?? Við getum hist einhvern tímann um daginn og gert eitthvað skemmtilegt sem ég veit ekki alveg hvað ætti að vera en við þurfum bara að ákveða það í sameiningu, borða svo saman, fá okkur sjúss, þær sem geta og hitta svo strákana á einhverjum bar á eftir. Eru þið til í eitthvað svona? Þetta gæti orðið ógeðslega gaman ha,er að ekki? Komið endilega með komment. sjáumst bæ




Wednesday, February 19, 2003
 
Go Jane

Ég er farin að fara inn á bloggerinn 2 sinnum á dag til að athuga hvort Jane sé búin að fá léttusótt (eiga barn). Ég er ógeðslega spennt! Af mér er annars fínt að frétta, komin 5 og 1/2 á leið og allt hefur gengið vel. Við Doddi vorum að kaupa okkur íbúð (eða skrifa undir tilboð í íbúð) fyrir um 2 vikum og bíðum spennt því ef allt gengur upp (lán og annað) fáum við íbúðina afhenta 10. apríl næstkomandi.




Tuesday, February 18, 2003
 
Jónína ég samhryggist ykkur og fjölskyldum ykkar.
Já ég veit líka hvern hann valdi í Bachelor og ég veit líka hvernig það fór :) hehehe maður fer bara og leitar á netinu eftir svona upplýsingum. Það er svona að vera forvitin, maður verður að vita hvernig svona hlutir fara. Skondið að horfa á þetta.
Kveðja Helena



 
sælar
Jónína ég samhryggist ykkur innilega.
Ég veit hver vinnur í Bachelors nénénenénéne............
Gangi þér vel Jane, ég er alltaf að bíða eftir fréttum bæ



 
Ég samhryggist innilega Jónína!
Kveðja af kennarafundi í Ingunnarskóla.



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel