left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Wednesday, May 07, 2003
 
Uups!
Skrifadi eg svo allt med islenskum stofum ... sorry!



 
Ég ætlaði einmitt að fara að segja það sama. Það skrifar aldrei neinn! Ég er hef byrjað svona 3 sinnum á bull bréfi um nákvæmlega ekki neitt en ég hef bara ekki haft neitt að segja. Ég get svo sem sagt ykkur að okkur Dodda líður ógeð vel í Furugrundinni í nýju íbúðinni okkar. Og að við bíðum hrika spennt eftir erfingjanum sem er nú genginn 35 vikur í malla mömmu sinnar. Svo get ég svo sem sagt ykkur frá því að börnin í skólanum eru að verða galin á að vera svona lengi fram á sumarið í skóla ...þau eru ekki að meika þetta og þá er næsta víst að kennararæflarnir (við) meikum þetta ekki heldur. Hverjum datt í hug að lengja skólaárið svo börnin geti fengið að húka á stofnunum aðeins lengur við að föndra eða gera einhver "ÞEMAverkefni". Ég skil þetta ekki alveg. Jæja ég er allavega búin að skrifa smá, mér þætti samt gaman að vita hvernig þið hinar eruð að fíla þetta neverending skólaár.
Kveðja
Vakan



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel