left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Wednesday, July 07, 2004
 
Hæ. Endilega hafið samband ef ´þið komið á Krókinn ég verð ánægð að hitta ykkur. Það er bara ágæt spá held ég . Verum endilega í bandi og reynum að hittast bæ




Sunday, July 04, 2004
 
Halló alles
Gaman að sjá hvað allar eru duglegar að skrifa hér inn, ég er ekkert of dugleg. Annars er allt fínt að frétta hjá mér, reyndar tókst mér að ná mér í einhverja pest sem er alveg týpískt þar sem ég er að fara út á fimmtudaginn, fór til doksa á föst og fékk pensilínskammt, vonandi verð ég búin að jafna mig á þessu kvefi og hósta fyrir Spán. Þið sem eruð að fara á Fame ættuð ekki að hafa miklar væntingar til sýningarinnar, fór í síðustu viku og er þetta fín sýning, alla vega hægt að hlæja mikið og já mjög flottir dansar :)
Já og kannski aðalfréttin hjá mér er er sú að ég fékk mér nýjan bíl í vikunni, fékk nóg af Ford Ka sem var alltaf að bila (mæli ekki með þessum bíl ehehe) og fékk mér Toyota Avensis.
Annars er ég búin að skrá mig á íþróttakennaranámskeiðið, eru einhverjir fleiri sem ætla að fara??????
Heyrumst síðar,
Adios
Helena



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel