left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Saturday, July 24, 2004
 
Helló beauties
Í Reykjavík er sól.... enn einn daginn.... ég er svo ánægð og ef ég væri ekki á svona miklum túr færi í laugarnar og baðaði mig í sól.  Verð bara að láta mér nægja svalirnar... mig langar að verða svona brún eins og Melkorka og Jane. 
Við jane, elli, kjartan, melkorka, ólöf og randy kíktum á FAME í gær og það kom bara á óvart hversu gott stykkið er í verslunarmiðstöð Kópavogs hi hi.  Fæstir söngvaranna sungu vel, en dansararnir bættu það upp.  Það var svaka kraftur í leikhópnum svo að sýningin var bara nok góð.  Svo eru það Randy og Ólöf.... haldið þið ekki bara að þau séu búin að lofast hvort öðru.... ví í vííí víí.... til hamingju krúttibollur!  Jæja, veðrið bíður ekki eftir mér... út vil ek.
tjaó





Wednesday, July 21, 2004
 
Til hamingju Sigga sæta
Til hamingju með þetta allt.  Til lukku með giftinguna og nýja babyið.  Vei vei vei gaman gaman gaman.  Mér finnst þið stórsniðug og dugleg að fjölga okkur.  Bæ bæ úr blíðunni í bænum.  Vakan





Monday, July 19, 2004
 
Sælar
Hlakka mikið til að skella mér á FAME um helgina... þá sjaldan maður lyftir sér upp.  Gott að heyra að Þórey er farið að líða betur.  Geggjað veður þessa dagana.  Bara að kvitta fyrir komu á bloggerinn.... sjáumst í sólinni.
V




Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel