![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, August 07, 2004
Friday, August 06, 2004 Hæ hó babes, Hér er allt gott að frétta, mar er bara að njóta síðustu dagana í sumarfríinu, verst að það rignir og rignir og rignir hérna á suðurlandinu hmmmm ekki skemmtilegt. Skellti mér annars í Smáralindina og hitti Betu. Hún sagði mér frá því að Rúnar og frú væru búin að eignast barn. Ekki mundi ég hvort það var stelpa eða strákur svo ég fór á heimsíðuna hjá Finnboga og sá að það var stelpa sem er búið að nefna Bríet Björg :) Ég er alveg til í saumó fljótlega, aftur á móti kemst ég ekki seinni part næstu viku þar sem ég verð upp á Laugarvatni á íþr.ken.námskeiði. Jæja, heyrumst síðar Adios Monday, August 02, 2004 Sælar Við vorum að koma úr bústaðnum hjá pabba og mömmu þar sem við eyddum nóttinni. Við fórum í fyndnasta brúðkaup ever á laugardaginn... mikið um hlátur og það í kirkjunni, brúðguminn er svo mikill trúður að hann varð að vera fyndinn þegar hann sagði JÁ við að eiga konuna sína og svo sprakk maður úr hlátri þegar Dr. Gunni og hljómsveit spiluðu í þessari litlu kirkju. Sem sagt góð skemmtun. Stúlkur ég á víst næsta klúbb.... látið vita hvenær þið viljið koma ...td. mánudaginn 9. ágúst, þriðjudaginn 10. ágúst... eða bara í þessari viku. Kveðja úr rigningunni Vakan |
![]() |