![]() |
![]() iki-skvisurFriday, September 03, 2004 Hæ aftur Siffa mín sendu honum Dodda endilega mail því hann gerir ekkert sem ég bið hann um svo endilega biddu hann líka.. Svo er hægt að hringja í manninn í 6962308. Er sem sagt búin að nefna þetta við hann. Vakan aftur Hreyfing og Hreysti. Sá bókina í skápnum fyrir tilviljun, vissi ekki einu sinni að við ættum hana. Þér er velkomið að fá hana Sigga mín. Kv. Vakan Halló skvísur Hef ekki haft tíma til að fara á netið, vinn svo svakalega mikið þó ég fái ekki borgað fyrir það... Kjarabaráttan er sem sagt mín barátta. Ég skal nefna salinn við Dodda... Annars væri gott að hafa samband við hann sjálfan thordur@valur.is eða doddiusa@hotmail.com eða bara bæði. Ég er til í reunion og svo er ég til í sunnudagsbíltúr upp á Laugarvatn og kíkja á ykkur þar. Við viljum meiri pening (munið þið ekki eftir "Við viljum Vilko") Wednesday, September 01, 2004 Hæ stelpur Ég er búin að vera rosa dugleg að skrifa. Freyst var tölvan mín í ólagi og svo þegar hún komst í lag þá fannst mér ég þurfa að skrifa svo mikið að ég vissi ekki hvar ég átti áð byrja svo ég sleppti því bara/frestaði. En alla vega er ég komin frá Spáni og mikið var þessi ferð frábær. Okkur leið svo vel þarna og hefðum sko alveg verið til í að vera aðeins lengur, alla vega enginn leiði komin í okkur. Enda vorum við mikið á ferðinni og umkringd skemmtilegu fólki sem er ekki nema von. Eg meina hver vill ekki vera með mér????hahaha..... Fórum til Barcelona og okkur fannst hún æði og svo var bara rúntað um nærliggjandi bæji þar sem einhverjar verslanir voru að finna og jafnvel fleigt svona einu vísakorti í gegnum posann,gaman gaman. Erna ég reyndi að minnsta kosti að senda þér sms en það hefur kannski verið um það leiti sem þú tapaðir símanum þínum rófan mín. En það er alla vega gott að þú sért að fíla þetta vel þarna. Ég myndi alla vega frekar vilja vera á Spáni heldur en að vera með útileikfimi, verð að viðurkenna það. En alla vega þessi ferð okkar var snilld og hlakka til að fara vonandi aftur. En nú er það bara skólinn og nóg að gera. Það er reyndar ekki víst hvort ég komist á laugardeginum 25. sept. en ég þori ekki að negla það samt þetta á eftir að komast á hreint. Ekki nema ég strjúki bara heim á laugardagskvöldinu og hitti ykkur, það er alla vega möguleiki, sjáum til. En ekkert endilega breyta dagsetningunni út af mér, ég redda þessu einhvern veginn. En mig langar alveg að fara að hitta ykkur fljótlega, eða eru þið kannski nýbúnar?? heyri í ykkur kannski kv. Fanney Monday, August 30, 2004 Hæ hó alles, ætla nú að byrja á því að óska Betu innilega til hamingju með árangurinn, stórglæsilegt alveg :) Nú er kennslan byrjuð á fullu, er með útitíma og væri nú alveg til í að fá majorka veðrið aftur. Leiðinlegt að vera úti í þessum kulda brrrrrrr. Hvað er annars að frétta af ríjúníoni???? Eitthvað í gangi?? Kveð í bili, adios chicas |
![]() |