![]() |
![]() iki-skvisurThursday, October 07, 2004 Erna Lind Er kona eigandans ekki Bjargey. Var með þeim í Alabama og bið að heilsa.... þú ert að vinna hjá Sumarferðum ekki satt? Vakan Tuesday, October 05, 2004 Hola sætu stelpur, Takk æðislega fyrir síðast, mikið var nú gaman :) Siffa og Jónína, þið stóðuð ykkur frábærlega vel í skipulaggningu, húrra fyrir ykkur. Beta til hamingju með afmælið á laugardaginn og með kosninguna sem besti þjálfarinn jahú :) Sí jí leiters Monday, October 04, 2004 Púhú Vaka kemst ekki hún verður vonandi í útlöndum:( Sunday, October 03, 2004 Hæ Ætla að byrja á því að þakka fyrir mig. Þetta var alveg frábært hjá ykkur Siffa og Jónína. Alla vega ég skemmti mér ógeðslega rosalega vel þrátt fyrir að hafa þurft að gefa brjóst svona í miðju partýinu en það tók fljótt af. Alla vega alveg frábært geggjað. En ég fékk smá skammir í hattinn í gær því ég átti víst að vera búin að koma með eina uppskrift hér fyrir mörgum mánuðum og ætla sem sagt að standa mig núna. Betra er seint en aldrei... En alla vega er þetta uppskrift að kvöldsnarli sem er "snilldin ein" frá Pálmari pálmari hver gæti annar komið svona að orði. En alla vega hér kemur hún. Siffa fylgstu með! Uppskrift fyrir ca. 4-6 -500 gr. kotasæla -1 rauðlaukur -200 gr. salsasósa "hot" -1/2 agúrka -1/3 blaðlaukur -1 rauð paprika -2 sveppir (má alveg sleppa finnst mér, finnur ekkert bragð) -Melba-toast kexkökur -Þeytið kotasæluna í matvinnsluvél. Blandið svo fínt söxuðum rauðlauknum og salsasósunni saman við og hrærið með skeið. Hellið blöndunni í grunna skál/mót. Saxið agúrkuna, blaðlaukinn, paprikuna og sveppina smátt og dreifið yfir kotasælublönduna. Berið fram með Melba-toast kexkökum. Svo er ein önnur hollustu/hollari hugmynd Ef maður vill hafa ídýfu með grænmeti þá er hægt að kaupa svona kryddbréf frá Knorr með alls konar bragði og hræra því út í sýrðan rjóma eða það sem hollara er, þeytta kotasælu. Verður aðeins þéttari í sér en allt í lagi. Jæja nóg í bili það eru mjaltiræ Endilega ef einhver lumar á einhverju súper sniðugu og góðu þá endilega...... kv. Fanney Sælar Takk fyrir síðast. Siffa og Jónína, þið stóðuð ykkur ofsalega vel og ég vildi að ég hefði komist í Öskjuhlíðina í sprellið. Takk fyrir mig.... Vaka |
![]() |