![]() |
![]() iki-skvisurWednesday, October 20, 2004 Hæ skvísur Allir hressir. Mig langar ekki að vera í verkfalli lengur en villllll samt fá betri laun. ÆÆÆ er alveg komin með nóg af því að reyna að verja stöðuna mina fyrir fáfróðu fólki sem veit ekkert hvað það er að tala um og er ómögulegt að útskýra fyrir. Mér finnst reynda nokkur munur á að vera umsjónakennari og sérgreinakennari er því kannski stundum erfitt að verja vinnutímann. En alla vega ætla ég að reyna að koma til Sonju en það gæti verið að okkur sé boðið í afmæli sama dag, það kemur bara í ljós, læt vita. Við myndum þá bara koma tvær mæðgurnar. vonandi gengur þér vel á mótinu á Ítalíu Ólöf mín. Úff er eitthvað svo þreytt og er að spá i að fara að sofa. Hildur mín litla er 3 ára í dag. Héldum afmæli um daginn en í dag fékk hún smá pakka frá okkur þegar hún vaknaði. Svo fór hún með ís á leikskólann Enduðum svo daginn á Pizza Hut með 1 pari af ömmu og afa (hún á svo mörg). Ég held hún hafi bara verið ánægt. Gat leikið sér, fékk ís og glaðning, rosa stuð. Fór allt og seint að sofa í gær og ætla því að fara að halla mér núna. góða nótt og hafið það gott . Tuesday, October 19, 2004 hmmm var búin að skrifa einhver ósköp og sýnist mér að það hafi ekki komið, annars í stuttu máli var þetta innihaldið: klúbbur hvenær hjá Sonju?, kalt, hvasst, Akureyri næstu helgi, ekkert að gera í verkfalli en kom mér upp bloggsíðu líkt og Sonja, www.blog.central.is/helenaj endilega kíkið :) Heyrumst (mun styttra en fyrra bréfið) heheh Adios Jelló alles, hvenær var aftur hittingur hjá Sonju??? Það er svo langt síðan það var ákveðið að ég bara man það ekki heheh :) Annars er alltaf sama rokið hér á Suðurnesjunum líkt og á öllu landinu, vonandi að það verði búið að lægja á föstudaginn því þá fljúgum við til Akureyrar. Það er komið að því, þrekmeistarinn á laugardaginn og Erna ég tók við sætinu þínu :) Hlakka til að slaka aðeins á eftir helgina. Já eins og Sonja þá kom ég mér líka upp bloggsíðu í verkfallinu, hef svo sem ekkert annað að gera þessa dagana þannig að endilega kíkið á www.blog.central.is/helenaj Heyrumst síðar Adios Hæ... Sonja... spurning til Sonju. Var að spá í hvort þetta væri stelpuklúbbur. Td. eiga makar að koma með? Ég veit að krílin eiga að koma. Bara smá uppúrveltingur:) |
![]() |