![]() |
![]() iki-skvisurThursday, November 11, 2004 Hæ hæ. Eru ekki allir hressir. Hvernig líst ykkur á að lög verði sett á kennara?? Ég var í jarðaför í dag hja strák sem var með mér í bekk í Réttó. Alltaf svo skrítin tilfinning að vera í jarðaför hjá svona ungu fólki. Kirkjan full út úr dyrum og allt svo rosalega sorglegt. Já Vaka var sem sagt eitthvað að skjóta á mig að segja einhverjar fréttir. Ég get alla vega sagt ykkur það að ég hef haft nóg að gera í verkfallinu þannig séð. En við Haukur vorum að kaupa okkur hús hér rétt hjá. Þetta er rosa spennandi. Þetta er einbýslishús og í því eru 2 íbúðir. Við ætlum að búa í annari íbúðinni og athuga hvort við getum ekki leigt út hina. Þannig það er svolítið gaman að fara í svona stóra íbúð miðað við þá sem við erum í. Sú nýja er sem sagt rúmlega helmingi stærri en sú gamla. Svo var líka svolítið skemmtilegt að það var barist um litlu íbúðina okkar og fór hún þó nokkuð yfir settu verði. Ótúlegt hvernig fasteignamarkaðurinn er í dag. Svo það verður gaman að fá ykkur í heimsókn þegar við höfum komið okkur fyrir, en við fáum ekki húsið fyrr en í byrjun febrúar svo það verður nóg að gera þá. Stuð stuð. Alla vega vona ég að við munum koma sæmilega út úr þessari samningavitleysu þú svo þetta sé ekki það sem maður hefði kosið að láta setja á sig lög. Hvað gerist þá hjá leikskólakennurum sem eru að biða með sínar viðræður út af okkur o boy. síja girls bæ Wednesday, November 10, 2004 Halló stelpur. Takk fyrir síðast. Voða stuð í klúbb í Keflavík. Og eftir kúbbinn skora ég á Fanney til að skrifa smá pistil um sig... go for it girl. Monday, November 08, 2004 Hæ hæ Ég var að spá í bílamálin á morgun. Þannig er að ég get því miður ekki farið á mínum bíl á morgun og er því að grátbiðja (uhuhuhu) einhvern um far suður með sjó á morgun. Getur einhver annar farið á bíl í þetta skiptið?? kv. Fanney |
![]() |