![]() |
![]() iki-skvisurThursday, November 18, 2004 HÆ Já það er ágætt að vera komin í vinnuna en það þarf að fara eitthvað dýpra í þennan samning fyrir mig finnst mér og skoða hann betur til að sjá hvernig hann getur gert vel fyrir mig. Annars held ég að við ungu kennararnir sem erum orðin eldir en 27 ára fáum ekki mikla launahækkun því við vorum komin í þetta 3.þrep en þeir sem eru yngir en 27 það eru þeir sem hækka. Þess vegna vil ég til dæmis fá að vita hvað gerist fyrir þá sem eru 27 -30 ára. Eða ég skil þetta alla vega svona. En eru ekki annars bara allir hressir og kátir í þessum ógeðslega kulda. sé ykkur vonandi fljótt bæ Monday, November 15, 2004 Samstaða í Reykjavík. Allir í mínum skóla mjög harðir. Heyrði meira að segja í Pálma að Safamýrarskóli ætlaði ekki að mæta á morgun, og þeir hafa verið með undanþágu mjög lengi... svo Reykvíkingar eru æfareiðir. Vaka spaka Sunday, November 14, 2004 Á að mæta til vinnu á mánudaginn??? Á að láta ríkið snappa af okkur mannréttindum eins og gert er í Rússlandi. Fuck the system.... Vaka bálreiða. |
![]() |