![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, December 11, 2004 Hæ Fanney mín Hér er ég. Náttúrulega ofsa brjálað að gera í vinnunni og ég kíki nú reglulega á bloggerinn. HEf bara ekki skrifað mjög lengi. Annars fer jólafríið að byrja og þá verð ég sennilega ein á blogginu... segi svon. Beta til hamingju með þjálfarastöðurnar. Yfir og út... Vakan Erna lind.... er verið að deita... bolta bullurnar, bolta bullurnar fara stundum á deit.... tell us more. Friday, December 10, 2004 Hæ gæs Erna mín þú kemur stöðugt á óvart. En hvar býrðu, ertu í breiðholtinu?? Já og Beta mín innilega til hamingju með stöðurnar. Er ekkert að frétta af saumaklúbbamálum? Það er nú ekki langur tími til stefnu, jólin að bresta á og allt sem því tilheyrir. Það er nú kannski skrítið að segja það en þó svo maður se búin að vera í löngu verkfalli og nýbyrjaður aftur að kenna er ég farin að hlakka til að fá jólafrí usss þori varla að segja frá þessu. Hvar er Vakan núna hef bara ekki sé tangur né tetur af henni né heyrt síðan við vorum hjá Jane síðast. Hvar ertu kona?? Sé ykkur alla vega vonandi í næstu viku. kv. Fanney |
![]() |