left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Saturday, January 15, 2005
 
Til hamingju Sigga
Til lukku með nýja prinsinn. Hvernig gengur og allt hitt, hvað var hann stór. Við viljum að sjáfsögðu vita ALLT.
Vakan





Wednesday, January 12, 2005
 
Sælar

Gleðilegt ár og svona. Talandi um hókus pókus stólinn þá vorum við í svona stólum þegar við vorum litlar... svona úr harðplasti með stýri... hehe. Líst vel á klúbb hjá Melkorku á fimmtudag í næstu viku og látið mig endilega vita hvenær ég á að halda næst... mann man ekki! Annars erum við Kópavogsbúar ofsa hressir.

Hey Erna Lind... er hægt að versla eitthvað flott á Kanarý. Láttu mig endilega vita hvar maður á að versla. Síðast þegar ég fór var eitt moll í las palmas.... er það svoleiðis ennþá?

Vakan




 
hehehe Melkorka, ég veit meira að segja hvað Hókus pókus stóll er :) Það var til svoleiðis stóll þegar ég var lítil og bróðir minn notaði hann á eftir mér :) Hann er meira segja ennþá til á þessu heimili :) Mikið notaður og þokkalega flottur hehehehe. Jæja annars fór ég í Bláfjöll í dag, fórum úr Heiðarskóla með u.þ.b. 170 nemendur úr 7.-10. bekk og var alveg rosalega gaman. Það er alveg ótrúlegt hvað margir hafa aldrei farið á skíði áður, en sem betur fer slasaðist enginn og allir komu heilir heim, nema þá kannski með sært stolt :)
Kveðja frá skíðaálfnum





Tuesday, January 11, 2005
 
Hæ skvísur.
Ég kemst líka í saumó fimmtudaginn 20.jan. gaman gaman. Hlakka bara strax svakalega til að hitta ykkur. Hildur á Melkorka að eiga kók til að skála í eða........?
En alla vega er ég kannski að fara annað á föstudaginn en það kemur í ljós fljótlega. Maður fór víst að plana annað því ég hélt að ekkert yrði af konukvöldinu þá.
En alla vega gangi þér vel Sigga mín og ég sé ykkur hinar í næstu viku.
bæbæ Fanney




 
Blessaðar dömur, ég kemst í saumó fimmtudaginn 20. no problem :) Einmitt ég segi eins og Erna, mar verður hálf ruglaður í öllu þessu. En því miður þá var ég að ákveða annað djamm þennan dag Ólöf mín svo ég kemst því miður ekki :(
Annars er það að frétta að við erum að fara á skíði á morgun upp í Bláfjöll með 7.-10. bekk :) Ég fæ að fara með jibbí og hlakka mikið til, verð þó að fara varlega ehe, skipun frá skólastjóra heheh hann vill ekki fá mig aftur á hækjur tíhí
Over and out :)
P.s. Áfram Sigga!!!!!!!




Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel