left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Monday, February 07, 2005
 
Hæhæ
Sigga min til hamingju með nafnið á drengnum. Æðislegt. Já við fluttum okkur bara rétt yfir Grensásveginn, það heitir Stóragerði 31. Erum bara búin að vera að vinna á fullu eins lengi fram eftir og við getum til að reyna að gera þetta eitthvað snyrtilegt. Þegar maður byrjar vill maður helst klára allt í gær fattiði. En þetta á eftir að taka einhvern tíma usss. En alla vega það er bara gaman og upplífgandi þegar maður er þó byrjaður og sér alla vega uppbyggingu en ekki bara niðurrif. (soldið erfið setning, nenni ekki að laga hana) Svo er bara svo mikið selskapslíf núna síðustu daga og næstu. Okkur var 2x boðið í mat um helgina sem er bara æðislegt því ekki nennir maður að elda núna og svo var bollukaffi hjá mömmu í gær. Svo er saumó hjá mer (ekki með ykkur) á þriðjudag og annar á fimmtudag. Alltaf í stuði nóg að gera.
Sé ykkur seinna kv. Fanney




Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel