![]() |
![]() iki-skvisurThursday, April 14, 2005 Hæ hæ. Ég held ég komist í saumó alla þessa daga redda bara pössun ef þarf. En annars er ég bara hress. Árshátíð starfsfólks í skólanum á morgun, vonandi verður stuð. Hildur læsti mig einu sinni úti og þá vorum við á Sauðárkróki fyrsta sumarið. Ég hljóp út til að taka inn dót sem hún átti því það byrjaði að rigna og venjulega tók ég alltaf úr lás en bara í þetta eina skipti var hún svo fljót að loka og ég hafði gleymt lásnum. Ég var líka að elda grjónagraut sem brann eftir allt en sem betur fer var maður í næsta húsi í bílskúrnum sínum að gera við hjól og var mjög snöggur að finna krakkann sinn og tróð honum inn um glugga og gat opnað. Hildur var samt hin hressasta og hafði engar áhyggjur af mér sem var í taugakasti úti. Hún sat inni og mátaði skó og kíkti gegnum póstlúguna og heilsaði öðru hverju. Sé ykkur í saumó kv. Fanney Tuesday, April 12, 2005 Hæ hó, ég kemst því miður ekki í saumó 20. apríl, þar sem ég verð á leiðinni til Akureyris :) Annars allt fínt að frétta héðan, alltaf nóg að gera og minnkar ekki neitt heheh :) Kveðja Helena |
![]() |