![]() |
![]() iki-skvisurWednesday, June 01, 2005 Sælar. Já partýið svar rosalega skemmtilegt svona þó ég segi sjálf frá en alla vega skemmti ég mér mjög vel og þurfti líka að borga pínu toll af því daginn eftir. Tók svona nokkra klukkutíma að koma sér í gang aftur. En var samt komin á fætur um kl. 9 á laugardagsmorgun, og í íþróttaskólann og svo heim að þrífa. En já hvað haldiði að hann Bjarni skólabróðir okkar hafi nú gert. Hann kom færandi hendi með splúnkunýja playstation tölvu og Singstar pakka. Þá hafði hann lofað mér því að gefa mér eina slíka helgina á undan er ég bauð honum að koma í partýið en ég mundi ekkert eftir því og hélt bara að hann ætlaði að koma með sitt dót og kannski fara svo með það aftur heim til sín. En ó neineinei maðurinn lánaði mér nokkra singstar diska en gaf mér svo tækið og var búin að skrifa utan á kassann svo ekki gat ég skilað því aftur ussss. Mér finnst þetta svolítið erfitt að þyggja svona stóra gjöf frá einum manni og veit ekki alveg hvernig ég á að höndla þetta en ómægod. En hann sagði að sælla er að gefa en þyggja svo ég verð bara að trúa því lítið annað get ég gert í málinu. En aftur að partýinu þá var sungið í singstar til kl. 4 um nóttina stanslaust. Geggjað stuð og allir sem heilsu höfðu drukku á sig gat held ég því það voru flestir þarna rúllandi fullir. Eða kannski fór bara svona mikið fyrir þeim ég veit það ekki...hahaha En alla vega singstar hjá mér þegar öllum hentar, komakomakoma. sé ykkur kv. Fanney Monday, May 30, 2005 Til hamingju með afmælið Fanney mín. Singstar lögin hljóma ennþá í eyrum mér. Þetta var rosa gaman. Við verðum eiginlega að halda Singstar saumó fljótlega og það með bjór við hönd.... he he! Vaka að klára síðustu vinnuvikuna :) jibíkóla |
![]() |