![]() |
![]() iki-skvisurTuesday, June 07, 2005 Hæhæ Hvað segist. Er ekkert í gangi hjá ykkur og engar kjaftó. Það hefur enginn skrifað svo lengi svo ég ákvað að setja inn nokkrar línur þó svo ég hafi svo sem ekkert að segja. Nú eru bara 2 vinnudagar eftir í skólanum og svo sumarfrí jibbíííí. Í gær voru skólaslit og svo var farið í vorferð skólans. Nær allt starfsfólk smalað upp í rútu og upp í sumarbustað til einnar þar sem var úðað i sig risa jarðaberjum og fleira góðgæti og skolað niður með einhverju köldu. Svo var farið á humarstaðinn á Stokkseyri Við fjöruborðið og raðað í sig humrinum ummmm mér finnst humar svolítið góður. En gaman gaman var nú samt komin heim um kl. 22 og fór að sofa kl. 23. Frekar þreytt eitthvað. En hvað segið þið á ekkert að fara að hittast eitthvað eða eru bara allir í dvala kannski núna og nóg að gera, útlönd og fleira. Heyri í ykkur og hafið það gott. kv. FAnney |
![]() |