left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Saturday, June 25, 2005
 
Hellú hellú,
Jane lestu ekki alla pósta??? Löngu búin að segja hvað koma fyrir höndina mína :) heheh annars er það gifs í 10 daga í viðbót og Kanada 7. júlí :) jibbí hlakka mikið til.
Annars var Köben æði, mikið verslað (eiginlega of mikið ef það er hægt), ekkert djammað en nokkrir bjórar drukknir. Veðrið var flott og þegar það rigndi á föstudeginum þá skellti maður sér bara í verslunarmiðstöðina Fields sem er huge stór.
Saumó??? jammmm ég er til en það verður helst að vera í þessari viku, hvernig líst ykkur á það. Hvaða dagur hentar best? Látið vita svo sem flestar geti mætt :)
Hlakka til að heyra í ykkur,
Adios
Helena hin brotna :)




Tuesday, June 21, 2005
 
Sælar

Er að leita að stækkanlegu eða litlu barnarúmi svona fyrir 2ja ára orma. Ef þið þekkið einhvern sem vill selja eða eigið sjálfar endilega látið mig vita. Annars er allt gott hér í Kópavoginum Tinna Dögg er að verða 2ja ára gömul á föstudaginn. Við Tinna Dögg erum annars nýkomnar frá Danmörku, vorum í heimsókn í Árósum hjá Guðrúnu vinkonu minni. Það var svaka fínt og ég verslaði ógeð mikið í H&M eins og mér einni er lagið.

Jæja spáin segir að það verði sól á morgun svo ég segi bara enjoy the sun.

Vaka í sumarskapi



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel