left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Friday, September 30, 2005
 
Hæhæ
Já það er gaman þegar gengur vel. En gott Melkorka mín að þetta leysist ágætlega með íbúðarmálin hjá ykkur. Rosalega sorglegt með mömmu hennar Pálínu þetta er hræðilegt. Skilaðu innilegum kveðjum. Vonandi sérðu þér fært að koma á miðvikudaginn við lofum að vera góðar við þig. En elsku kellingin mín innilega til hamingju með daginn í dag og vonandi verður hann skemmtilegur og góður og kannski færðu einhverja pakka líka. Það er alltaf svo gaman.
Já komið helgarfrí . Ég vaknaði fyrir allar aldir í morgun og skilaði manninum mínum út á flugvöll í Keflavík City því hann var á leiðinni til Liverpool á leiki. Mér finnst eg ekkert smá góð eiginkona að færa honum svona gull upp i hendurnar. Björ, strákar og fótbolti gæti ábyggilega ekki verið betra fyrir þá. Vonandi fæ ég hann bara heilann til baka á mánudaginn annars fær hann aldrei að fara svona aftur. haha
En sé ykkur fljótlega og hlakka til að hitta ykkur. Góða helgi kv. Fanney



 
Hæ hó pæjur, ég kemst í saumó á miðvikudaginn :) og hlakka til að sjá ykkur. Annars er allt fínt að frétta héðan, alltaf það sama. Vakna, vinna, æfa, stundum læra, hvíla sig og sofa :) ehe og svo er að borða nokkrum sinnum í þessari rútínu líka :)
Melkorka til hamingju með afmælið :) eigðu góðan dag. Pabbi minn á líka afmæli í dag og ætlar hann að stinga af upp í sumarbústað þannig að mar skellur sér í afmælismat þangað á morgun :)

Annars þarf ég að fara að kenna, síðasti tíminn minn í dag heheh búin kl. 12.35 á föstudögum :) jibbí jey, skemmtilegir föstudagar. Engar gelgjur :) bara litlu sætu dúllurnar í 2.-4. bekk :)

Kveðja
Helena




Thursday, September 29, 2005
 
Hæhæ
Ég kemst í saumó á miðvikudaginn jibbííííí. Vonandi gengur þetta bara upp og allir geti komið þennan dag. Hlakka bara til. sé ykkur.
Hei Jane það þýðir ekkert að vera eitthvað sorry og fúll á móti. Bara vera með og borsa og brosa og brosa og hafa gaman af þessu. .............Eg er bara að djóka aðeins þetta er ekkert illa meint eg vona að þu vitir það, bara aðeins að kitla þig. hahahahah

En auðvitað nenna ekkert allri alltaf að skrifa þegar þeir kíkja á blogger en það er samt gaman þegar einhver skrifar þó það sé ekkert merkilegt, bara að rétt kasta kveðju og hvað drifið hefur á daga ykkar.

Hafið það gott og sé ykkur vonandi á miðvikudaginn. kv. Fanney




Monday, September 26, 2005
 
Hæhæ
Hvað er að frétta af ykkur skvísur, allri í formi eða hvað??
Langt síðan einhver hefur skrifað síðast meira að segja Jane Petra ekki skrifað lengi sem er mjög ólíkt henni finnst mér.
Melkorka mín hvernig gengur hjá ykkur með íbúðarmálin. Er búin að hugsa mikið til ykkar undanfarna daga þvi nú er alveg að koma 1. okt.
Helgin var bara róleg hjá mér bara svona eitthvað dúllerí heima, sem er stundum voða gott. En næstu helgar eru þétt skipaðar svona næstum því. Ég fór á Sálina á Nasa á laugardaginn fyrir viku síðan og hitti Einar þar. Hann var bara rosalega hress. Hann sagðist vera fluttur í bæinn held ég, eða mig minnir það og hann sagði líka að Stebbi Magg ætlaði að vera 1 ár í viðbót fyrir austan.
Hlakka bara annars til að hitta ykkur fljótlega vonandi í saumó.
Sjáumst skvísís, Fanney
...........Hei sá í blaðinu í gær að Tjaldmiðstöðin er til sölu, eigum við að skella í púkk og kaupa hana hahahah



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel