left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Friday, October 07, 2005
 
HÆ aftur
átti að vera hafið góða helgi vinkonur



 
Hæhæ
Ég hef því miður bara sorgarfréttir engar skmmtilegar. Afi minn dó í gærkvöldi. Hann var orðin mjög veikur svo nú líður honum örugglega betur. En samt er þetta alltaf erfitt þegar að þessu kemur þó svo maður sé búin að búa sig undir þetta. Vildi bara segja ykkur þetta því við vorum að tala um svona í saumó.
Hafið góða vinkonur, kv. Fanney




Tuesday, October 04, 2005
 
Hæhæ
Ég mæti í saumó júhú hlakka til. Maður talar allaf eins og maður sé lokaður inní einhverjum gám og kemst aldrei út nema 1 x í viku.
Beta innilega til hamingju með afmælið skvís. Langt síðan maður hefur séð þig góða.
Jane það voru mamma mín og pabbi sem voru að fara í gær í golfferð til spánar. Flugu fyrst til Faro og svo var rúntað i 2 tíma yfir til spánar þar sem þau verða í 1 viku. Er það sama ferð og foreldrar þínir eru í?
Já ég held að Haukur hafi skemmt sér konunglega í Liverpool-ferðinni sinni. Alla vega er ég held ég fegin að hafa sent Tryggva bróður hans með honum í staðin fyrir mig því þeir voru bara í þvílíkum pakka sem ég hefði pottþétt ekki nennt. Kannski bara í smá stund en svo hefði ég viljað fara búðirnar, eða eitthvað. Svo þeir liverpooluðust saman big time. Svo hafði Haukur móral af því að komast ekki í neinar búðir því dagskráin var svo þétt og ég búin að berja það í hann að hann yrði að koma með eitthvað fallegt heim því ég gaf honum þessa ferð en fór ekki, svo það var samið í millilandasímtali einu að ég færi bara í smá búðarleiðangur hér heima sjálf og fengi mér eitthvað fallegt og þá væru allir glaðir, mjög glaðir. hahaha
En mér finndist jafnvel enn sniðugra að fara til Köben eina helgi og þeir á leik. Frábær hugmynd.
Sé ykkur á miðvikudaginn kv. Fanney



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel