![]() |
![]() iki-skvisurFriday, November 18, 2005 HÆhæ Ég ætla að kjósa laugardaginn 10. des og til vara fimmtudaginn 8. des. Get ekki boðið ykkur heim föstudaginn 9. des. því miður. ok. Góða helgi kv. Fanney Wednesday, November 16, 2005 Hæhæ ok. mér er líka sama eins og ég sagði síðast. Hvað segi þið þá með laugardaginn 10. des. ef við viljum hafa þetta á laugardegi en svo er líka allt í lagi að fá sér rauðvínsglas á virkum degi og föndra svolítið með, eða það finnst mér alla vega. En spáum aðeins í þetta ef bæði Melkorka og Helena komast ekki laugardaginn 3. des. Ef við myndum hittast á virkum degi þá gætum við bara byrjað kl. 19:00 og þá er kannski runnið eitthvað pínulítið af okkur kl. 23.00-24.00. Bara svona smá hugmyndir frá mér. ' Bestu kveðjur og er farin að hlakka til að búa til kransinn góða. Til hamingju að vera búin að selja íbúðina Mel, mikill léttir get ég trúað. Systir mín er í basli að losna við sína íbúð en það er líka eitthvað útaf eignaskiptasamningi og einhverjum leiðindum í kellingunni sem á heima fyrir ofan..... Annars skiptir það mig engu máli hvenær FÖNDURRAUÐVÍNSKLÚBBURINN verður haldinn, ekkert planað eins og er en veit að það er Sálarball 3. des á Nasa og mín er pottþétt að fara á það húllumhæ :) hehehe Ætla að fara að skella mér í ræktina svo ég heyri í ykkur síðar :) Hasta luego Helena Tuesday, November 15, 2005 Hæhæ Melkorka mín innilega til lukku með þetta. Þetta gekk á endanum og það er gaman. En ég sko, mér er alveg sama hvenær við höldum jólaklúbbinn nema ekki á sunnudeginum 4. held ég. En annars er ég laus og karlmannslaus líka eftir 9. des. var reyndar búin að senda kallinn í vinnu þennan jólaföndurslaugardag en það er allt í lagi. En látiði bara vita mer er alveg sama ok. Líf og fjör kv. Fanney |
![]() |