![]() |
![]() iki-skvisurThursday, December 08, 2005 Hæhæ Jæja þá er það dagskrá laugardagsins næsta, 10.des. Allir að mæta kl. 19:30 í Stóragerði 31 í eldrauðan, hressandi og svalandi fordrykk áfengan eða óáfengan hvort heldur sem þið viljið. Síðan verður kaldur kjúklingarréttur / salat borinn á borð fljótlega eftir það. Svo er það eftirréttur og nammikransaföndur. Og yfir föndurgerð verður sko ekki þaggað niður í þeim sem hafa fram að færa góðar kjaftasögur hahaha... Ekki gleyma svo því rauða eða hvíta það er alveg með ólíkindum hvað kransinn getur víst orðið flottur með nokkrum rauðum eða hvítum dropum í glasi. Hlakka svo bara alveg svakalega til að sjá ykkur elskurnar mínar. jólakveðjur, Fanney Wednesday, December 07, 2005 Halló halló pæjur, jæja er farin að hlakka til að hitta ykkur yfir nammikransagerð á laugardaginn :) Búin að kaupa nammið en ég keypti dúnk af Celebration nammi :) Ákvað að kaupa ekki Mackintosh því það eru margir molar þar sem eru ekki með snúningi til að festa við hringinn :) En ætliði að nota sláturgarn??? Ég kann það ekki en ég ætla að koma með hring og föndurvír :) Annars allt flott að frétta :) Hlakka mikið til í að komast í jólafrí, mikið um að vera í skólanum og er alveg til í að fá smá frí frá þessu :) Annars hlakka til að sjá ykkur Kv. Helena Tuesday, December 06, 2005 Hæhæ Já þá er það bara á laugardaginn heima hjá mér kl. hvað eigum við að byrja?? Hvernig líst ykkur á kl. 19:30 kannski. Viljiði fyrr eða seinna látiði bara vita. Svo er það bara að koma með hringina og sláturgarnið og nammið að sjálfsögðu. Ég skal gefa ykkur eitthvað að borða og hafa gos fyrir þær sem vilja en eigum við ekki bara að hafa það þannig að þær sem vilja koma með rautt og hvítt koma með það. Síðan langar mig að gera smá skoðanakönnun. En þannig er að ég veit ekkert hvernig karamellur ég á að hafa á kransinum mínum (get ekki ákveðið mig) svo mig langar svo að spyrja ykkur hvernig þið ætlið að hafa hjá ykkur. Hlakka til að sjá ykkur á laugó kv. Fanney |
![]() |