![]() |
![]() iki-skvisurSaturday, December 31, 2005 Gleðilega hátíð dömur mínar, vona að þið hafið haft það gott yfir jólin. Alla vega er ég búin að hafa það mjög gott, hef getað borðað og borðað án þess að maginn segi eitthvað við því.... þannig að maginn er bara kátur þessa dagana. Innilega til hamingju með bumbubúann Fanney mín og Ólöf með giftinguna og tilnefninguna á Íþróttamanni ársins :) Fullt af hamingjuóskum :) Ég er sammála að við ættum að gera eitthvað fyrir Óskar og fjölskyldu, held að það sé algjört möst. Jæja, læt þetta nægja í bili, heyrumst síðar. Adios Helena Thursday, December 29, 2005 Hæhæ og gleðilega hátíð og vonandi hafa allir haft það gott um jólin. Já hvað getum við gert fyrir Óskar og fjölskyldu eru einhverjar hugmyndir?? Ég veit ekki hvort Melkorka er að beina einhverju á mig en ég tek því bara þannig. Ég ætla að sem sagt að vera samferða Jane í óléttubransanum. Við erum komnar svipað langt ég rúmar 13 vikur og hún rúmar 14 vikur. Við verðum sem sagt í þessu í sumar. Ólöf mín innilega til hamingju með daginn á morgun vonandi verður hann bara æðislegur og njóttu hans í botn. Hafið það gott um áramótin og hittumst svo vonandi fljótlega á næsta nýja ári síjú Fanney |
![]() |