left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Saturday, March 11, 2006
 
Hæhæ
Innilegustu samúðarkveðjur Sonja mín frá mér líka.
En eitt svolítið fyndið. Það var að byrja nýr kennari í skólanum okkar í síðustu viku og hún er sko þrusu hress kona og eins og hún hafi allltaf unnið þarna. En svo vorum við að spjalla um ÍKÍ á kaffistofunni í gær og hvað það væri ógeðslega gaman þar, því forfallakennarinn er úr ÍkÍ og svo á ein á mann úr íKÍ og við vorum að spjalla. En þá segir þessi kona sem var að byrja að kenna hjá okkur við mig: Bíddu hvenær varst þú í íKÍ? og ég svara því. Þá segir hún varst þú með Stefáni Má á Laugarvatni? Og ég bara JÁ. ohh hann er svo æði. Já segir hún, hann er sko bróðir minn. Svo fyndir Jónína að þetta komi fram svona 2 daga í röð. Hún ætlaði einmitt að fara að hitta hann því hann er í borginni þessa dagana vegna jarðarfararinnar en hann er víst skólastjóri fyrir norðan einhvers staðar. Varð að segja ykkur þetta.
Sjáumst svo í næstu viku vonandi.
kv.Fanney




Friday, March 10, 2006
 
Sælar

Sonja innilegar samúðarkveðjur. Jane til lukku með litla afmælisstrákinn. Allt fínt að frétta af okkur. Við TD erum heima veikar í dag en ætlum okkur að hressast mjög fljótlega. Ég er að spá í að fara til USA bráðlega að skoða kennslugögn og námsefni til enskukennslu, fæ vonandi styrk úr Vonarsjóði.
Kveðja,
Vakan




Tuesday, March 07, 2006
 
Hæhæ
Ég held ég komist báða dagana bæði miðvikudag og fimmtudag, svo mér er alveg sama held ég. Melkorka þú ákveður bara þann dag sem er bestur fyrir þig til að fá svona skæruliða og skellibjöllur heim til þín. síjú girls kv. fanney



 
Ég myndi þá koma seint á miðvikudeginum þar sem ég er í skólanum.... yrði sáttari með fimmtudag en miðvikudagur alveg inn í myndinni....
Kv. Helena



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel