left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Tuesday, April 11, 2006
 
Viltu kaupa páskasól? Viltu kaupa páskasól? Það kostar ekki neitt að kaupa'ana, viltu kaupa páskasóóóóllll???? Jújú, mikið er nú ljúft að vera komin í páskafrí :) Annars er allt fínt að frétta, mar er bara alltaf að slæpast í ræktinni núna, sérstaklega í fríinu og nú er mín búin að taka þá ákvörðun að taka þátt í einstaklingskeppninni í Þrekmeistaranum 13. maí :) nema eitthvað mikið komi upp á...... Svo er mar orðinn löglegur öldungur :) heheh þ.e.a.s. fyrir Blakmót öldunga sem verður síðustu helgina í apríl á Snæfellsnesi, hitti örugglega Stebba Má þar líkt og síðast.. þannig að það er nóg að gera :)
Jæja en ætla að henda mér í sturtu, var að koma úr blaki með köllunum í Kef :)
Hasta luego (úff já og svo þarf mar að fara að læra í spæ en það eru 2 tímar fram að prófi :/ ehe)
Helenita




Monday, April 10, 2006
 
HÆhæ
Já páskafríið er æði. En ég er svo frábær að ég skrifaði niður röðina frá Melkorku. Hún er svona: Melkorka, Beta, Erna Lind, Vaka, Helena, Hildur, Jane Petra, Fanney, Jónína. Þannig að í raun og vera ætti Beta að vera með næsta saumó. Veit bara ekkert hvort hún er eitthvað að kíkja á bloggerinn og sjái þessa röð.
En sjáum til. Hafið það gott.
kv. Fanney




Sunday, April 09, 2006
 
Takk fyrir afmæliskveðjurnar snúllurnar mínar

Ég er sko komin í páskafrí og er að fíla það í strimla. Ég er svo á leið til USA í viku eftir ða páskafríi líkur svo þetta verður góð pása frá öskrum og látum. Hver á næsta saumó? Er það ég eða einhver önnur? Bara svo það líði ekki of langur tími í næsta klúbb.
kv,
Vaka páskaseggur



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel