left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Wednesday, May 03, 2006
 
HÆHÆ
Góða ferð Beta til Hvíta-Rússlands. En hva, ætlar þú ekki að þjálfa neitt næsta sumar eða...?
Já ég er ótrúlega skörp að fatta það að skólinn er barasta alveg að verða búin. Ummmm bara ljúft, kemst ekki yfir það. Vonandi verður bara frábært veður í sumar hér í borginni svo maður getur verið meira og minna úti að spóka sig. En ótrúlegt en satt þá ætum við að vera heima hjá okkur í sumar en ekki einhvers staðar úti á landi. Fyrsta sumarið síðan Hildur fæddist sem sagt fyrsta sumarið í 4 ár. Það er líka góð tilhugsun að þurfa ekki endalaust að vera í einhverri togstreytu við sjálfan mig að ég eigi að vera á einhverjum öðrum stað en þar sem ég er og geta líka bara verið heima hjá mér og notið þess svona eitt sumar.
Jæja búin að létta á mér í bili.
Hafið það allar ljómandi gott og sé ykkur í næsta saumó.
kv. FAnney




Tuesday, May 02, 2006
 
Hææææbbbss

Vá! Já fannsla pannsla stutter eftir af skólaárinu (thank God). Ég held að ég hljóti að eiga næsta saumaraklúbb. Sumartíminn hefur alltaf verið minn tími:) Hvað segið þið um maílok eða júníbyrjun??? Látið mig bara vita.

Knús og kraml

Vaka kaka



 
Hæhæ
Viti þið hvaqð ég var að fatta í gær. Það eru aðeins ca. 20 kennsludagar eftir og svo kemur sumarfrí. jibbíkóla. Allaf ljúft líka að fá svona einn dag í frí inn í hverja viku eins og núna undanfarið.. og ef það hafur ekki verið lögbundin frídagur hef ég verið veik (bara samt 1x) Svo þetta er bara fínt. Man bara ekki hvenær ég mætti síðast á mánudegi í vinnu, held það hafi verið einhvern tímann í mars. usssss
Alltaf er nú ljúft að hitta ykkur elskurnar og hlakka bara til þangað til næst. Hver á næsta klúbb aftur????
sé ykkur í stríðinu kv. Fanney



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel