left lapel  
bow tie


iki-skvisur




Wednesday, May 24, 2006
 
Halló halló, já þvílíkur kuldi...... daginn eftir Þrekmeistarann byrjaði ég að fyllast af kvefi og svo í gærkvöldi fór ég á fótboltaleik í kuldanum og rokin brrrrrhhhhhh.... kvefinu fannst þetta frábært og er í öllu sínu veldi í dag :( Já og úrslitin hjá okkur voru þannig að Kiddý rústaði þessu gersamlega, var langt á undan öllum öðrum. Ég lenti í 7. sæti og bætti tímann minn um 9 sek., svo var liðið í 3. sæti og við bættum einnig tímann okkar. Þannig að yfir heildina var þetta mjög gott hjá okkur :) hehehe
Jæja, þarf að ganga frá einkunnum.... lítið eftir :) jibbí jey
Bæjó spæjó




Tuesday, May 23, 2006
 
Hæhæ
Hvað er að frétta af ykkur skvísur. Nú fer nú aldeilis að sjá fyrir endann á skólanum hjá okkur sem eru að kenna. Þó kannski Melkorka sé búin en hún er líka svo æðisleg að það er ekki nema von að hún sé komin í frí. Ég segi nú bara hvað er maður að gera að vera að kenna í barnaskóla þegar annað er í boði eins og manntó. En það er nú kannski ekki hlaupið að því að fá vinna þar. ÆÆÆ maður getur velt sér upp úr þessu endalaust en alla vega erum við líka alveg að fara í frí, bráðum. Vonandi verður bara orðið aðeins heitara þá heldur en er núna þessa dagana. Díses kræst maður hvað er í gangi, þetta er algjört djók. Ég er úti með krakkana í íþróttum núna og kannski ekkert spes að vera úti í ógeðslegu roki og snjókomu með litla krakka usss maður hefði átt að dásama veðrið aðeins meira sem var um daginn. En vonandi batnar þetta allt saman fljótlega.
jæja ætla nú að fara að hætta þessu kvarti og segja þetta gott í bili. Vonandi hittumst við bara fljótlega hjá Vöku svöku í saumó og stuði.
sé ykkur kv. Fanney



Home | Archives

Powered By Blogger TM
  right lapel