![]() |
![]() iki-skvisurFriday, June 09, 2006 Hæhæ Jæja það var gaman að sjá ykkur í saumóinum í gær og allaf er fullt gott að borða namminamm. Takk fyrir mig. Jane ég gleymdi að spyrja þig í gær en ertu búin að beyta aðgangsorðinu inn á barnalandið hjá ykkur?? Ótrúlega er gott að vera komin í sumarfrí, en er varla að fatta að það er loksins komið maður er búin að bíða eitthvað svo lengi eftir þessu þó svo að veturinn hafi alls alls ekki verið lengi að líða, fljótur ef eitthvað er. En alla vega bara ljúft líf framundan og tilhlökkun ein. Guð hvað ég hlakka til að fá kallinn í heiminn, en samt er enn nóg eftir. Jæja hafið það gott og við sjáumst seinna. Fanney Monday, June 05, 2006 Sælar. Ég athuga hvort ég kemst á fimmtudaginn. Ef fólkið er orðið fullt og leiðinlegt í partýinu þá rúlla ég mér yfir til ykkar, sé til hvernig þetta kvöld þróast. Læt bara vita. En hafið það annars gott og vonandi sjáumst við. Ummm hvað það er ljúf tilhugsun að vera ekki að fara að kenna í fyrramálið, bara að vinna ýmiss verk og fara á hádegisverðarfund og þannig. Bara aldrei að vita nema maður fari í pils svona í stað íþróttagallans til tilbreytingar jibbíkóla. En sé ykkur kv. Fanney |
![]() |